Kostnaðurinn margfaldur eftir nokkur ár 8. júní 2012 06:30 Yfirborðsmerkingar eru víða máðar eða alveg horfnar eins og á veginum í Leirársveitinni. Myndin er tekin í maí. mynd/ólafur Guðmundsson
Kostnaður ríkisins er margfalt meiri ef vegir fá að grotna niður. Vegamálastjóri segir viðhald þjóðvega komið niður fyrir lágmarksþröskuld. Vegakerfið er að hrynja undan okkur, segir Ólafur Guðmundsson, fulltrúi EuroRAP á Íslandi. Takmarkað viðhald á vegakerfi landsins mun kosta ríkið margfalt meira til langs tíma litið en að sinna nauðsynlegu viðhaldi strax. Þetta er mat vegamálastjóra. „Ef farið er niður fyrir ákveðinn þröskuld í viðhaldi brotnar burðarlag vegarins niður og mjög dýrt er að byggja það upp aftur,“ segir Hreinn Haraldsson vegamálastjóri. „Það er mikið í það sækjandi að halda þessu í horfinu.“ Hreinn segir viðhald á vegum hafa farið niður fyrir lágmarkskröfur. „Þá fara vegirnir að grotna niður, verða hættulegir. Við getum ekki búið í mörg ár við fjárveitingarnar eins og þær eru núna.“ Ólafur Guðmundsson, fulltrúi EuroRAP á Íslandi, hefur gert úttekt á vegakerfinu á Íslandi í ein sex ár. Hann segist aldrei hafa séð vegakerfið í eins lélegu ásigkomulagi. „Frá því að Íslendingar komu sér upp vegakerfinu sem við þekkjum í dag með bundnu slitlagi, þá held ég að ég hafi aldrei séð það jafn slæmt.“ EuroRAP er verkefni regnhlífarsamtaka bifreiðaeigendafélaga í Evrópu og gengur út á að hafa eftirlit með vegum og sjá til að þeir séu í samræmi við evrópsk viðmið. Ólafur segir íslenska vegakerfið ekki fullnægja þessum kröfum. „Það eru staðlar um yfirboðsmerkingar í Evrópu samkvæmt samningum sem við eigum að fara eftir en gerum ekki. Vegagerðin er einnig með reglur um merkingar en það er ekki farið eftir þeim í dag að ég best fæ séð.“ Spurður hvort lélegt viðhald muni á endanum kosta meira segir hann hikstalaust svo vera. „Við erum á fjórða ári og við getum ekki beðið lengur. Þetta er að hrynja undan okkur.“ Ólafur segir aðferðina hætta að vera sparnað. „Þetta er orðin eyðilegging. Malbikið er að molna upp. Bindiefnið er farið sem þýðir það að eftir nokkur ár þurfum við að gera allt upp á nýtt. Þetta er eins og með sólpallinn þinn, þú átt að bera á hann einu sinni á ári en ef þú gerir það ekki fyrr en eftir fjögur ár þá er pallurinn ónýtur og þú þarft að skipta um allt timbrið.“birgirh@frettabladid.is
Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Innlent Fleiri fréttir Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Sjá meira