Hentar ekki öllum að vera viðskiptavinir MP 26. maí 2012 07:30 „Ef við höfum ekki það sem fólk er að sækjast eftir þá eru margir á markaðnum sem eru að bjóða þessa þjónustu líka. Það er ekki þannig að fólk þurfi að vera bankalaust. Það hentar bara kannski ekki akkúrat að vera hér miðað við það sem við erum að gera,“ segir Sigurður Atli Jónsson, forstjóri MP banka.
MP banki mun rukka þá viðskiptavini sína sem eru ekki með tvær milljónir króna eða meira í formi innlána, séreignasparnaðar, eignastýringar eða útlána hjá bankanum um nýtt 750 króna viðskiptagjald á mánuði frá 1. september næstkomandi. Þeir viðskiptavinir sem eiga eða skulda tvær milljónir króna eða meira þurfa ekki að greiða umrætt gjald. Þetta kemur fram í bréfi sem MP banki sendi viðskiptavinum sínum á miðvikudag. Í bréfinu kemur fram að bankinn hafi í apríl kynnt breyttar áherslur. Í þeim felst meðal annars að „bankinn muni einbeita sér að bankaþjónustu sem eflir atvinnulífið og að nýtt kjörorð bankans er banki atvinnulífsins. Þjónusta bankans mun því taka breytingum til að styðja við nýjar áherslur bankans.“ Í tengslum við þessar breytingar hefur MP banki nú ákveðið að umfangsviðmið einstaklingsviðskipta verði skilgreint að lágmarki tvær milljónir króna. Þeir einstaklingar sem eru í viðskiptum hjá bankanum sem uppfylla ekki nýju umfangsviðmiðin verða rukkaðir um 750 krónur á mánuði frá 1. september næstkomandi. Sigurður Atli Jónsson, forstjóri MP banka, segir gjaldið fyrst og fremst vera lagt á til að standa straum af auknum gjöldum og sköttum. Um leið er verið að draga mörkin um umfang viðskiptavina. „Þetta er hluti af stefnu bankans og sýnir hvar við erum að reyna að staðsetja okkur gagnvart okkar helstu markhópum. Við erum að verðleggja þessa þjónustu þannig að það endurspegli það sem kostar að veita hana.“ Hann segir MP banka ekki leggja mikla áherslu á mjög almennan og dreifðan neytendamarkað í bankaviðskiptum. „Við þurfum að beina kröftum okkar að þeim viðskiptavinum sem við teljum að við höfum eitthvað fram að færa til. Ef við höfum ekki það sem fólk er að sækjast eftir þá eru margir á markaðnum sem eru að bjóða þessa þjónustu líka. Það er ekki þannig að fólk þurfi að vera bankalaust. Það hentar bara kannski ekki akkúrat að vera hér miðað við það sem við erum að gera.“ Sigurður Atli segir viðskiptavini bankans hafa sýnt viðskiptagjaldinu mikinn skilning. Fáir þeirra hafi ákveðið að flytja viðskipti sín annað og margir nýir séu að færa sig til bankans. Hann minnir á að viðskiptavinir sem uppfylli ekki umfangsviðmiðin geti aukið viðskipti sín við bankann og þannig komist hjá gjaldheimtunni. thordur@frettabladid.is
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira