Meirihluti vill kjósa um Evrópusambandið 26. maí 2012 08:30
Rúmur helmingur kjósenda vill að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla á næstunni til að ákveða hvort halda eigi aðildarviðræðum við Evrópusambandið (ESB) áfram. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Alls sögðust 57,9 prósent þeirra sem afstöðu tóku til spurningarinnar vilja málið í þjóðaratkvæði en 42,1 prósent vildu það ekki. Tillaga um að halda slíka atkvæðagreiðslu var felld á Alþingi á fimmtudag. Minnihluti stuðningsmanna stjórnarflokkanna vill málið í þjóðaratkvæði, um 20,4 prósent stuðningsmanna Samfylkingarinnar og 46,7 prósent kjósenda Vinstri grænna. Hins vegar vilja um 67,2 prósent sjálfstæðismanna málið í þjóðaratkvæði og 60,4 prósent stuðningsmanna Framsóknarflokksins. Konur eru almennt hlynntari þjóðaratkvæðagreiðslu en karlar. Um 63,4 prósent kvenna vilja kjósa um framhald aðildarviðræðna en 52,7 prósent karla. Hringt var í 1.326 manns þar til náðist í 800 manns samkvæmt lagskiptu úrtaki miðvikudaginn 23. maí og fimmtudaginn 24. maí. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir búsetu og aldri. Spurt var: Á að halda þjóðaratkvæðagreiðslu á næstunni til að ákveða hvort halda eigi aðildarviðræðum við Evrópusambandið áfram? Alls tóku 92,8 prósent þeirra sem náðist í afstöðu til spurningarinnar. - bj
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Sjá meira