Undirmenn borgarstjóra átta í stað átján 23. maí 2012 06:30 Dagur B. Eggertsson
Teknar voru til afgreiðslu tillögur um einföldun á stjórnkerfi Reykjavíkurborgar á aukafundi borgarstjórnar í gær. Einnig var afgreidd stofnun embættis umboðsmanns borgarbúa. Dagur B. Eggertsson, formaður stjórnkerfisnefndar borgarinnar, segir um að ræða einföldun á miðlægri stjórnsýslu; sameiningu skipulags- og byggingarsviðs, umhverfis- og samgöngusviðs og framkvæmdasviðs í umhverfis- og skipulagssvið og skrifstofu eigna og atvinnuþróunar. Hann bendir á að á kjörtímabilinu hafi fagsviðum fækkað úr átta í fimm, skrifstofum í miðlægri stjórnsýslu fækkað úr tíu í sjö og beinum undirmönnnum borgarstjóra fækkað úr átján í átta. Þá hafi fagráðum fækkað um þrjú, auk þess sem framtalsnefnd hafi verið lögð niður. Í bókun borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins eru stjórnkerfisbreytingarnar sagðar án fjárhagslegs ávinnings, auk þess sem skort hafi á samráð við ákvarðanatökuna. „Fyrir liggur að engin hagræðing fylgir breytingunum og að öllum líkindum munu þær fela í sér aukinn kostnað fyrir borgarbúa,“ sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti flokksins. Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, gagnrýndi einnig skort á samráði við breytingarnar, sem hún sagði þó jákvæðar fyrir borgina. - óká
Mest lesið Eldgos hafið Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Innlent „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Innlent „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ Innlent Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Innlent Fleiri fréttir Eldgos hafið Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Sjá meira