Ríf vonandi ekki eitthvað fyrir þessa Ólympíuleika Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. apríl 2012 08:00 Vignir Svavarsson fagnar hér sigri á Ungverjum á EM í Serbíu í janúar. Mynd/Vilhelm
Varnartröllið Vignir Svavarsson hefur verið lengi viðloðandi íslenska karlalandsliðið en ólíkt flestum öðrum reynsluboltum liðsins þá hefur hann ekki fengið að kynnast því ennþá að spila á Ólympíuleikum. Vignir missti af síðustu leikum vegna meiðsla en var í eldlínunni í Króatíu um páskana þegar strákarnir okkar tryggðu sér farseðilinn á ÓL í London. Gerðum þetta af fullum kraftiMynd/Vilhelm„Þetta gekk bara eins og það átti að ganga því við ætluðum að koma okkur á Ólympíuleikana og það hafðist. Við vorum vel undirbúnir og komum einbeittir í báða leikina og eins og sást þá vorum við ákveðnir í að vinna báða þessa leiki örugglega og gera þetta af fullum krafti," sagði Vignir þegar Fréttablaðið heyrði í kappanum í gær. Það er ekki hægt að segja að sigrarnir á Síle og Japan hafi komið á óvart enda var íslenska landsliðið í léttasta riðlinum í forkeppninni en Guðmundi Guðmundssyni landsliðsþjálfara tókst vel í að halda strákunum á jörðinni. „Við megum ekkert við því að slaka á gegn svona liðum því það getur verið hættulegt. Við vorum meðvitaðir um það og þeir áttu kannski aldrei möguleika þegar á hólminn var komið," segir Vignir sem vonast eftir því að vera í fjórtán manna hópi Guðmundar Guðmundssonar í London. „Þetta verða fyrstu Ólympíuleikar mínir svo lengi sem ég helst heill og verð í hóp og þetta er búið að vera markmiðið hjá mér lengi," segir Vignir sem hefur verið á brúninni í undanfarin tvö skipti. Meiddist 2 vikum fyrir ÓLMynd/Vilhelm„Ég var í æfingahópnum fyrir Aþenu 2004 og tók þátt í öllum undirbúningnum og eftir það setti ég mér það markmið á sínum tíma að komast á næstu Ólympíuleika. Svo varð ég fyrir því óláni að rífa einhvern vöðva í maga tveimur vikum fyrir brottför til Peking og komst því miður ekki með. Nú ætla ég að vona að ég fari ekki að rífa eitthvað fyrir þessa Ólympíuleika. Þetta voru mín fyrstu meiðsli á ferlinum og þau gátu ekki komið á meira svekkjandi tíma," sagði Vignir. Það eru fjórir mánuðir í leikana og Vignir er á því að undirbúningur leikmanna eigi að hefjast strax. „Menn eru að spila mismunandi mikið með sínum félagsliðum og ég held að menn séu meðvitaðir um það að halda sér í góðu formi. Sumir þurfa að styrkja sig og aðrir þurfa að gera hitt og þetta til þess að vera í sem bestu líkamlegu ásigkomulagi þegar kemur að undirbúningnum fyrir leikana. Ég held að allir í liðinu séu innstilltir á það að vera í sem bestu formi þegar að því kemur," segir Vignir. En skipta þessir leikar aðeins meira máli fyrir þá í liðinu sem hafa ekki komist á ÓL áður? „Ég er ekki viss um að það skipti eitthvað meira máli fyrir okkur því Ólympíuleikar eru stærsta íþróttamót sem íþróttamaður getur komist á. Ef við skoðum handboltamenn þá er stórmót á hverju ári en Ólympíuleikar bara á fjögurra ára fresti," segir Vignir og hann vill heldur ekkert gefa upp um hvort að þetta verði stærsta stundin á ferlinum. „Ég get voða lítið sagt um það fyrr en að ég er kominn þangað. Mögulega gæti þetta orðið með stærri stundum sem maður hefur upplifað í sportinu," segir Vignir en Fréttablaðið náði á hann þegar hann var á leiðinni heim í leigubíl eftir að hafa flogið heim frá Króatíu. Leikur í kvöldMynd/Vilhelm„Ég er að fara að taka dótið saman og er að fara á æfingu því við erum að fara að spila á morgun. Þetta er ansi stíft prógram. Það var frí í þarsíðustu viku með félagsliðinu en þá voru við byrjaðir með landsliðinu. Það er alltaf frí þegar við erum með landsliðinu," segir Vignir og hann og landsliðsstrákarnir eru að fórna ýmsu fyrir landsliðið. „Fórna og ekki fórna. Það er heiður að spila með landsliðinu en það má kannski segja að við séum að fórna fríi fyrir landsliðið," segir Vignir að lokum. Hann og félagar í TSV Hannover-Burgdorf mæta Kára Kristjánssyni og félögum í Wetzlar í Íslendingaslag í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld.
Handbolti Mest lesið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Körfubolti ÍA – ÍBV 2-2 | Frábær endurkoma Eyjamanna í jafntefli á Skaganum Íslenski boltinn Maguire skilinn eftir heima í algjörum molum Fótbolti Sáttur eftir skrýtna daga: „Auðvitað er þetta truflandi“ Íslenski boltinn Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Körfubolti Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Handbolti Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Körfubolti Liverpool gæti komið Brighton í Meistaradeild Evrópu Enski boltinn Stórar breytingar á leið Íslands á stórmót Fótbolti Vilhjálmur Bretaprins fagnaði titlinum með Aston Villa Fótbolti Fleiri fréttir Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Magnaður Einar Bragi með ellefu mörk í fyrsta úrslitaleiknum Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Færeyjar á HM í fyrsta sinn Strákarnir hans Dags unnu Svía Yngri bróðir Sagosen steig á svið er Noregur komst á HM Alfreð og hans menn fengu ekki að hefna sín neitt Egyptaland - Ísland 27-30 | Tveggja sigra ferð til Kaíró Dagur snýr heim úr atvinnumennsku „Vaxandi meinsemd í íslensku samfélagi“ „Þetta úrslitaeinvígi braut mig“ Dagur gat ekki stillt upp sínu sterkasta í tapi gegn Svíum Santos óskaði eftir starfslokum sem þjálfari Selfoss Egyptaland - Ísland 30-31 | Skoruðu síðustu fjögur mörkin og tryggðu sér sigur Tilkynntu komu Arnars til stórliðsins á meðan hann spilaði landsleik Gísli Þorgeir útskýrir fjarveru sína: „Ber ekkert nema virðingu fyrir landsliðinu“ HSÍ verður að fá pening frá ríkinu „Hlakkaði til að koma hingað eftir síðasta leik“ „Gríðarlega stoltur af leikmönnum mínum“ „Ofboðslega stolt af því að standa hér sem sigurvegari“ „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að við værum on“ Sjá meira