Fimmtu Ólympíuleikarnir hjá Guðmundi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. apríl 2012 07:30 Guðmundur Guðmundsson. Mynd/Vilhelm
Strákarnir okkar eru komnir inn á Ólympíuleikana í London eftir að þeir náðu öðru sætinu í sínum riðli í forkeppninni sem fram fór í Króatíu um páskana. Íslenska liðið tryggði sér farseðilinn með sannfærandi sigrum á Síle og Japan í tveimur fyrstu leikjum sínum. Tap í lokaleiknum á móti Króatíu skipti ekki máli því Guðmundur Guðmundsson var búinn að koma íslenska liðinu inn á þriðju Ólympíuleikana í röð. „Ég er afskaplega ánægður og stoltur. Við erum að spila fyrir hönd þjóðarinnar og erum ánægðir að hafa náð þessum stóra áfanga," sagði Guðmundur við Guðjón Guðmundsson eftir að Ól-sætið var í höfn á laugardaginn. „Það eru ekki allir sem átta sig á því hversu stór áfangi það er að koma sér inn á Ólympíuleikana. Við erum búnir að tryggja okkur núna inn á leikana í þriðja skiptið í röð og er það frábært. Á leikunum eru öll bestu lið heims og er það heiður að taka þátt í þeim. Íslendingar verða að átta sig á því að þeir eiga frábært handboltalandslið og verðum við að styðja vel við bakið á því," sagði Guðmundur í þessu símaviðtali við Stöð 2 Sport eftir sigurinn á Japan. Guðmundur þekkir það vel að taka þátt í handboltakeppni Ólympíuleikana því hann var leikmaður á leikunum í Los Angeles 1984 og í Seúl 1988 og hefur síðan verið þjálfari liðsins á undanförnum tveimur leikum í Aþenu 2004 og Peking 2008. Fimm leikmenn íslenska liðsins eru væntanlega á leið á sína þriðju leika en það eru þeir Ólafur Stefánsson, Guðjón Valur Sigurðsson, Snorri Steinn Guðjónsson, Róbert Gunnarsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson. Þeir munu jafna með því met Jakobs Sigurðssonar sem var með á ÓL 1984, ÓL 1988 og ÓL 1992.
Handbolti Mest lesið Heimsleikarnir í beinni: Fyrstu skref Bergrósar á stærsta sviðinu Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Fótbolti „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Íslenski boltinn Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Fótbolti Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Óvíst hvort bardaginn milli Fury og Joshua fari fram Sport Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira