38 milljarðar afskrifaðir vegna gengisdóms 17. mars 2012 06:00 Landsbankinn færði eignir sínar niður um 38 milljarða vegna gengislánadóms Hæstaréttar í síðasta mánuði. Fréttablaðið/rósa
Landsbankinn færði eignir sínar niður um 38 milljarða króna vegna endurreiknings á gengislánum eftir dóm Hæstaréttar frá í síðasta mánuði. Þetta kemur fram í ársreikningi bankans sem gefinn var út í gær. Í tilkynningu frá bankanum er tekið fram að í þessum útreikningi, sem sé í samræmi við óskir Fjármálaeftirlitsins, felist engin afstaða til þess hversu víðtækt fordæmisgildi umræddur dómur hefur. Steinþór Pálsson bankastjóri segir í tilkynningunni að nýfallnir dómar hafi ekki verið nægjanlega skýrir og hafi því „valdið óvissu um hvernig fara á með ólögmæt lán og haga endurútreikningi þeirra". Steinþór segir bankann sýna ýtrustu varúð í mati á áhrifum dómsins. „Ljóst er að fleiri dómar þurfa að falla áður en myndin skýrist." Þess vegna, að því er kemur fram í tilkynningunni, gæti þessi upphæð komið til með að breytast eftir því sem mál þróast. Fram kom í ársreikningi Arion banka sem gefinn var út á fimmtudag að þar hafi 13,8 milljarðar verið afskrifaðir, en Íslandsbanki hefur ekki enn skilað ársreikningi. Meðal annars sem fram kemur í ársreikningnum er að hagnaður bankans á síðasta ári nam 16,9 milljörðum og arðsemi eiginfjárs bankans eftir skatta á síðasta ári var 8,8%. Heildareignir Landsbankans um síðustu áramót voru 1.135 milljarðar króna og höfðu þá vaxið um 55 milljarða á árinu 2011. Íslenska ríkið á rúmlega 80 prósenta hlut í bankanum og hefur verðmæti hlutarins aukist um 33 milljarða umfram fjármagnskostnað.- þj
Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira