Alfreð náði yfirhöndinni í einvíginu gegn Guðmundi 23. febrúar 2012 06:00 Alfreð Gíslason og Guðmundur Guðmundsson stýra tveimur af stærstu handboltaliðum heims. Alfreð hefur náð frábærum árangri með Kiel í vetur en liðið hafði betur gegn Guðmundi og lærisveinum hans í gær. Nordic Photos / Getty Images
Kiel er enn með fullt hús stiga í þýsku úrvalsdeildinni eftir átta marka sigur á Rhein-Neckar Löwen á heimavelli í gær, 33-25. Alfreð Gíslason er þjálfari Kiel og hefur náð ótrúlegum árangri með liðið á tímabilinu en liðið hefur unnið 21 leik á tímabilinu. Ekkert lið hefur byrjað betur í sögu deildarinnar. Kiel vann síðustu þrjá leiki sína á síðasta tímabili og sigrarnir eru því orðnir 24 í röð. Alfreð og Guðmundur Guðmundsson, þjálfari Löwen, voru búnir að mætast fimm sinnum með lið sín fyrir leikinn í gærkvöldi og voru með jafnan árangur. Lið Alfreðs var búið að vinna tvo leiki, lið Guðmundar var búið að vinna tvo leiki og einum leik hafði lyktað með jafntefli. Rhein-Neckar-Löwen vann báða deildarleiki liðanna í fyrra en Alfreð er nú kominn með undirtökin í einvígi þessara kappa sem léku lengi saman í íslenska landsliðinu á sínum tíma. Rhein-Neckar Löwen komst yfir, 2-1, í gær en þá tók tékkneska skyttan Filip Jicha leikinn í sínar hendur. Hann skoraði fjögur fyrstu mörk Kiel í leiknum og kom sínum mönnum yfir. Heimamenn létu forystuna aldrei af hendi eftir það og skoraði Jicha alls tíu mörk í leiknum. Skoruðu ekki í tíu mínúturMiklu munaði um tíu mínútna kafla um miðbik hálfleiksins þar sem Löwen náði ekki að skora eitt einasta mark. Ekkert gekk upp í sóknarleik liðsins, sama hvað Guðmundur reyndi. Að sama skapi gekk allt upp hjá Kiel og skipti engu hvaða leikmönnum Alfreð tefldi fram hverju sinni. Kiel brunaði fram úr og náði átta marka forystu, 14-6. Staðan var svo 17-9 í hálfleik en leikurinn var aldrei spennandi í síðari hálfleiknum. Aron Pálmarsson fékk sínar mínútur og skoraði eitt mark en Róbert Gunnarsson náði ekki að komast á blað hjá Löwen, þó svo að hann hafi mikið spilað í seinni hálfleik. Uwe Gensheimer var markahæstur hjá Löwen með átta mörk í gær. Mánuður í næsta toppleik hjá KielÞað er erfitt að sjá fyrir hvort og þá hvenær Kiel tapar leik á tímabilinu. Það er rúmur mánuður í að liðið mæti næst einu af efstu liðum deildarinnar en þá koma Dagur Sigurðsson og lærisveinar hans í Füchse Berlin í heimsókn. Berlínarrefirnir eru nú í öðru sæti deildarinnar. Löwen er nú þremur stigum frá þriðja sæti deildarinnar sem er það síðasta sem veitir þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Það er því hörð barátta fram undan fyrir Guðmund og félaga ef liðið ætlar sér að komast í keppni þeirra bestu.
Handbolti Mest lesið Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Fótbolti Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Körfubolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Fótbolti Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira