Engin aðgerð og Alexander spilar innan fjögurra vikna Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Berlín skrifar 18. febrúar 2012 08:00 Alexander Petersson ætti að geta verið með í næstu verkefnum landsliðsins. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Þrátt fyrir að Alexander Petersson sé nú að glíma við þrálát og erfið meiðsli í öxl eru forráðamenn þýska úrvalsdeildarfélagsins Füchse Berlin vongóðir um að hann muni spila með liðinu á ný innan fjögurra vikna. Alexander hefur ekki kastað handbolta síðan í leik Íslands og Slóveníu á EM í handbolta í síðasta mánuði. „Það er alveg ljóst að Alexander mun spila með Füchse Berlin áður en tímabilinu lýkur," sagði framkvæmdastjórinn Bob Hanning í samtali við Fréttablaðið eftir leik liðsins gegn Magdeburg í Berlín í vikunni. „Við gerum ráð fyrir því að hann komi aftur inn í liðið á næstu fjórum vikum." Alexander er með sýkingu í sinum í öxlinni sem og óeðlilegan beinvöxt. Læknum hefur ekki borið saman um hvort laga þurfi það með aðgerð en þeir sem Füchse Berlin hefur rætt við fullyrða að hann þurfi ekki aðgerð. „Það er álit okkar læknis sem og virts sérfræðings frá Bonn sem við leituðum til. Öxlin er orðin betri hjá honum og hann mun geta spilað á ný án þess að fara í aðgerð," sagði Hanning. Alexander sjálfur sagði við Fréttablaðið í viðtali sem birtist síðastliðinn fimmtudag að þar að auki væri verið að ráðfæra sig við lækna Flensburg, hans gamla félags, sem og lækna Rhein-Neckar Löwen sem hann gengur til liðs við í sumar. En Hanning stendur fast á því að hann þurfi ekki aðgerð. „Það er niðurstaða okkar og við erum auðvitað ánægðir með það. Við erum þess mjög vongóðir að hann geti spilað fljótlega með okkur á ný."
Mest lesið Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Fótbolti Óvíst hvort bardaginn milli Fury og Joshua fari fram Sport Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira