Handbolti

Verður afar erfið ákvörðun

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Snorri Steinn hefur verið lykilmaður í íslenska landsliðinu undanfarin ár.
Snorri Steinn hefur verið lykilmaður í íslenska landsliðinu undanfarin ár. Fréttablaðið/Valli
Handbolti Í gær var gengið frá bókun á flugmiða fyrir Snorra Stein Guðjónsson frá Kaupmannahöfn til Íslands en óvíst er hvort hann verði um borð í flugvélinni. Landslið Íslands er nú að undirbúa sig fyrir Evrópumeistaramótið sem hefst í Serbíu á sunnudaginn. Ísland á fyrsta leik á mánudagskvöldið.

Snorri Steinn hefur ekkert tekið þátt í undirbúningi landsliðsins þar sem hann hefur verið heima í Kaupmannahöfn með fjölskyldu sinni. Ástæðan er sú að kona hans, Marín Sörens Madsen, átti von á sér en þau eignuðust dóttur nú um helgina.

„Það er ekki hundrað prósent að ég komi heim á morgun [í dag]," sagði Snorri Steinn í viðtali við Fréttablaðið í gærkvöldi. „Ég er með flugmiða en hef ekki tekið endanlega ákvörðun um hvort að ég komi."

Honum er illa við að fara frá fjölskyldu sinni svo stuttu eftir fæðingu barnsins og ætlar að taka ákvörðun um framhaldið í samvinnu við Guðmund Guðmundsson landsliðsþjálfara.

„Út frá handboltanum væri auðvitað best að koma heim á morgun og ná síðustu æfingum fyrir mótið," bætir hann við en Ísland mætir Finnlandi í æfingalandsleik í Laugardalshöllinni á föstudagskvöldið. Liðið spilað á æfingamóti á Jótlandi í Danmörku um helgina en Snorri Steinn spilaði vitanlega ekkert með liðinu þá.

„Undirbúningurinn er að mestu leyti farinn í vaskinn hjá mér hvort eð er. Guðmundur verður að eiga lokaorðið um hvort að ég eigi að hoppa beint út í keppnina í Serbíu. Þetta er auðvitað engin óskastaða fyrir hann," segir Snorri.

„Auðvitað vill maður alltaf vera með og það kitlar mikið að fá að taka þátt í stórmóti," segir Snorri. „Ég hef verið að fylgjast með umræðunni heima í gegnum netið og það er alltaf mikil og góð stemning í kringum stórmót í handbolta."

En hann segir að það verði að vera á réttum forsendum. „Því miður get ég ekki gefið nein betri svör eins og er. Þrátt fyrir allt er manni illa við að fara frá fjölskyldunni á þessari stundu þó svo að konan hafi nánast sagt mér að fara bara," segir hann og hlær. „Þetta er því bara ákvörðun sem ég þarf að taka og verður hún ekki auðveld."

En þó svo að Snorri Steinn kæmi ekki heim í dag er þó enn möguleiki á því að hann spili með liðinu í Serbíu. „Ef ég kem ekki heim á morgun verðum ég og Guðmundur þjálfari að taka ákvörðun saman um framhaldið."

Landsliðið tók sér frí frá æfingum í gær en æfir í dag og á morgun auk þess að spila leikinn við Finna á föstudaginn. Hópurinn heldur svo utan á laugardagsmorgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×