Innlent

Skákuppboð aldarinnar í dag

Uppboð á tveimur sögulegum taflsettum úr fórum Friðriks Ólafssonar, fyrsta stórmeistara Íslendinga, fer fram í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Uppboðið, sem kallað hefur verið Skákuppboð aldarinnar, er liður í uppskeruhátíð Skákakademíu Reykjavíkur sem haldin er í dag.

Hún hefst á hádegi og munu krakkar í akademíunni tefla skákmaraþon við alla sem vilja. Krakkarnir safna í leiðinni áheitum í þágu æskulýðsstarfs í skák, en ágóði af uppboðinu rennur til sama málefnis.

Meginmarkmið Skákakademíunnar er að öll börn eigi þess kost að læra að tefla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×