Séra Sigurði Helga ráðlagt að endurgreiða utanlandsferðina Gunnar Reynir Valþórsson. skrifar 15. nóvember 2012 18:52
Ríkisendurskoðandi segir að fyrrverandi forstjóri hjúkrunarheimilisins Eirar hafi viðhaft örlætisgjörning þegar hann gaf tengdasyni sínum gjafabréf fyrir utanlandsferð. Forstjóranum fyrrverandi er ráðlagt að endurgreiða upphæðina. Eins og við sögðum frá í fréttum okkar í gær bendir ýmislegt til þess fjárhagserfiðleika og óráðsíu innan Eirar megi rekja mörg ár aftur í tímann, allt til forstjóratíðar séra Sigurðar Helga Guðmundssonar sem lét af störfum hjá Eir á síðasta ári. Á meðal þess sem vakið hefur athygli er að forstjórinn lét Eir greiða 200 þúsund krónur fyrir flugfarseðla fyrir dóttur sína og fjölskyldu hennar í ágúst 2011 í formi gjafabréfs. Svörin sem Sigurður Helgi hefur gefið fyrir þessu eru á þá leið að tengdasonur sinn hafi veitt hjúkrunarheimilinu lögfræðiaðstoð og að farseðlarnir hafi verið þóknun fyrir það. Núverandi stjórn Eirar fór þess á leit við Ríkisendurskoðun að hún rannsakaði málið og í bréfi Ríkisendurskoðanda um málið segir að ekki hafi verið sýnt fram á það með neinum hætti að útgjöldin tengist Eir með nokkrum hætti. Ekkert liggi fyrir sem útskýri í hverju meint lögrfræðiþjónusta á að hafa verið fólgin. Því verði að líta svo á að um svokallaðan örlætisgjörning að ræða af hálfu Sigurðar Helga, sem honum hafi verið óheimilt að standa fyrir án samþykkis stjórnar. Í lok bréfsins leggur Ríkisendurskoðandi til að Sigurði Helga verði gefinn kostur á að ljúka málinu með því að endurgreiða upphæðina innan tiltekins frests. Að öðrum kosti verði nauðsynlegt að íhuga næstu skref í málinu, eins og það er orðað. Ekkki náðist í Sigurð Helga við vinnslu fréttarinnar.
Mest lesið Íranir neita að hafa skotið eldflaugum Erlent Áhrifavaldur sakaður um að bera ábyrgð á dauða dóttur sinnar Erlent Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Innlent Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Innlent Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu Innlent „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Innlent Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Innlent Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Innlent Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Innlent Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Innlent Fleiri fréttir Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Efla samstarf Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar Vilja bjóða út eftirlit en meirihlutanum líst ekkert á það Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Vopnahlé í Miðausturlöndum í hættu og veiðigjöldin enn til umræðu Eldur í tveimur taugrindum Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Breytingar á lögum um sjúkratryggingar mismuni eftir efnahagsstöðu 42 prósent fanga erlendir ríkisborgarar Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss Sjá meira