Báturinn ónýtur eftir aðeins fimmtán róðra ÞJ skrifar 27. nóvember 2012 08:00 Stýrimaður björgunarþyrlunnar seig niður til skipverjanna, sem höfðu komist upp í fjöru af sjálfsdáðum. Skjáskot/LHG
Línubátnum Jónínu Brynju ÍS 22, sem strandaði við Straumnes á norðanverðum Vestfjörðum í fyrradag, verður sennilega ekki bjargað heilum af strandstað. Þetta staðfesti Jakob Valgeir Flosason, eigandi útgerðarinnar Jakobs Valgeirs í Bolungarvík sem á bátinn, í samtali við Fréttablaðið í gær. Jakob Valgeir sagði að mannskapur hefði farið út í bátinn í gær til að bjarga tækjabúnaði, veiðarfærum og öðrum verðmætum sem hægt var. Jónína Brynja er fimmtán tonna plastbátur sem kom glænýr í heimahöfn í upphafi mánaðar. Nýr er hann talinn kosta um 130 milljónir króna. Játar Jakob Valgeir því að um mikið áfall sé að ræða. „Það er þó fyrir mestu að mennirnir björguðust. Það er hægt að bæta veraldlega skaðann,“ sagði Jakob Valgeir. Jónína Brynja var á heimleið úr sinni fimmtándu sjóferð með um sex tonna afla innanborðs. Jakob Valgeir segir að sennilega sé hægt að rekja slysið til mannlegra mistaka. Skipverjarnir tveir komust sjálfir í land heilu og höldnu og var bjargað um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar um tveimur tímum eftir strandið. Jakob Valgeir segir útgerðina hafa tvo aðra báta, en unnið sé að því að fá annan bát á sjó í stað Jónínu Brynju.
Mest lesið Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Fleiri fréttir Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Sjá meira