Innlent

Bryan Ferry fundar á Bessastöðum

Bryan Ferry, einn farsælasti dægurtónlistarmaður samtímans og stærsti erlendi gestur Listahátíðar í Reykjavík í ár, lenti á Keflavíkurflugvelli á þriðja tímanum í dag.

Ferry mun funda með Ólafi Ragnari Grímssyni á Bessastöðum seinna í dag. Ferry mun koma fram í Hörpu tónlistarhúsi á morgun ásamt hljómsveit.

Tónleikarnir marka upphaf alþjóðlegra Nelson Mandela daga á Íslandi en tónleikarnir eru jafnframt þeir einu sem Ferry mun halda í ár.

Þá eru þetta einnig fyrstu tónleikar hans síðan hann lauk Olympia tónleikaferð sinni í Lundúnum í desember á síðasta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×