Átti ekki von á að grunur um brot kæmi upp 26. maí 2012 08:00 Ólafur Þór Hauksson fréttablaðið/Daníel
Sérstakur saksóknari var meðvitaður um fyrirætlanir þeirra Guðmundar Hauks Gunnarssonar og Jóns Óttars Ólafssonar um að hefja störf sem sjálfstæðir rannsakendur eftir að þeir létu af störfum hjá embættinu. „Rannsakendur hér hafa vitaskuld ákveðna þekkingu og reynslu sem hægt er að taka með sér í aðra starfsemi. Við áttum hins vegar alls ekki von á að sú staða kæmi upp að þeir myndu liggja undir grun um að hafa notfært sér gögn úr rannsóknum þeirra hjá embættinu,“ segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari. Embætti sérstaks saksóknara hefur kært þá Guðmund og Jón til ríkissaksóknara fyrir brot á þagnarskyldu í starfi. Þeim er gefið að sök að hafa selt upplýsingar, sem þeir urðu sér úti um í störfum fyrir embættið, til þrotabús Milestone. Tvímenningarnir unnu meðal annars sautján blaðsíðna skýrslu fyrir þrotabúið um gjaldþol Milestone veturinn 2007 til 2008. Það flækir málið að þrotabúið hefur átt heimtingu á að fá aðgang að stórum hluta þeirra gagna um starfsemi Milestone sem sérstakur saksóknari hefur undir höndum. Í yfirlýsingu frá Grími Sigurðssyni, skiptastjóra þrotabúsins, kom þannig fram að hann teldi að þrotabúinu hefði verið heimilt að fá öll þau gögn sem afhent voru á grundvelli rannsóknar tvímenninganna fyrir þrotabúið. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst var skýrslan unnin, í það minnsta að hluta, á sama tíma og mennirnir störfuðu fyrir sérstakan saksóknara. Þeir létu endanlega af störfum fyrir embættið í febrúar á þessu ári en störfuðu þó um tíma sem verktakar eftir að hafa hætt formlega um áramótin.- mþl
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira