Góðgerðarstarf líður fyrir tekjuhrun í spilakössum 26. maí 2012 09:00 Starf Landsbjargar, RKÍ og SÁÁ þarf ekki að kynna. Mikill hluti tekna félaganna kemur frá rekstri söfnunarkassa. fréttablaðið/vilhelm
Tekjur Íslandsspila hafa lækkað um fimmtung frá hruni. Góðgerðarstarf Rauða krossins, Landsbjargar og SÁÁ líður fyrir. Netspilun tekur sífellt stærri sneið af kökunni. Frjáls félagasamtök fá ekki aðgang að netinu. Tekjur Íslandsspila af spilakössum hafa dregist saman ár frá ári eftir hrun. Samdrátturinn kemur verulega illa við eigendurna, sem eru Rauði kross Íslands (RKÍ), Slysavarnafélagið Landsbjörg og SÁÁ, enda eru tekjurnar stór hluti af rekstrarfé þeirra. Magnús Snæbjörnsson, framkvæmdastjóri Íslandsspila, segir að frá árinu 2008 hafi tekjur fyrirtækisins af söfnunarkössum dregist saman jafnt og þétt. Heildartekjur í fyrra voru 1.330 milljónir og drógust saman um fjögur prósent á milli ára. Tekjurnar árið 2008 voru hins vegar rúmar 1.600 milljónir og samdrátturinn eftir hrun er því fimmtungur af tekjum á tímabilinu. Rauði krossinn, Landsbjörg og SÁÁ skipta um 60 til 70% þessarar fjárhæðar á milli sín, eða um milljarði árið 2008. Um 18% samdráttur er því þungt högg fyrir rekstur góðgerðarfélaganna. „Ástæðan er auðvitað sú að fólk hefur minna á milli handanna, en þá er aðeins hálf sagan sögð,“ segir Magnús. „Umhverfi þessa rekstrar hefur gjörbreyst. Netspilun verður sífellt algengari og er áætlað að allt að 1,5 milljarðar króna renni frá Íslandi í vasa erlendra aðila. Netspilun er því orðinn stór póstur í íslensku happdrættislífi sem okkur er meinað að taka þátt í.“ „Við höfum margoft fundað með innanríkisráðherra [Ögmundi Jónassyni] sem sér ekki okkar rök. Á meðan fer ekki króna af þessum tekjum til innlendra góðgerðarmála“, segir Magnús. Í ársreikningum Rauða krossins kemur fram að á milli áranna 2010 og 2011 lækkuðu tekjur af spilakössum um 11% að teknu tilliti til verðlags. Munurinn var enn meiri milli áranna 2010 og 2009 þegar tekjurnar drógust saman um 17,5%. Tekjur RKÍ af spilakössum árið 2008 voru 615 milljónir en 512 milljónir í fyrra sem var þriðjungur af öllum tekjum. Hlutfallið af tekjum var nálægt því helmingur árið 2008. Guðmundur Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Landsbjargar, segir að samdráttur í tekjum björgunarsveitanna frá Íslandsspilum sé tæp 25% milli áranna 2008 og 2011. Hann er uggandi um framhaldið. „Nú erum við komnir á þann stað að við þurfum að skera niður í rekstri.“ svavar@frettabladid.is
Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira