Óvæntir gestir í för með íslenska Eurovision-hópnum Hugrún Halldórsdóttir skrifar 26. maí 2012 12:45 Greta og Jónsi á sviði í Kristalshöllinni. mynd/AP
Svíum er spáð sigri en Íslendingum sautjánda sæti í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem fram fer í kvöld. Tveir óvæntir gestir fá að vera með íslenska hópnum í græna herberginu á stóru stundinni. Lokakeppni Eurovision hefst eftir sjö tíma og nú rétt fyrir fréttir var íslenski hópurinn staddur í Kristalhöllinni í Bakú til að æfa lagið Never Forget í síðasta sinn. Dómararennslið fór fram í nótt og stóð til klukkan þrjú að staðartíma. „Það var ekkert sem fór úrskeiðis eða neitt svoleiðis, allt gekk mjög vel fyrir sig," segir Greta Salóme Stefánsdóttir, Eurovisionfari. Veðbankar spá hinni sænsku Loreen sigri í kvöld og rússnesku ömmurnar eru samkvæmt þeim líklegastar til að hreppa annað sætið. Þar á eftir koma Serbar í þriðja og Ítalir í því fjórða. Íslenska framlaginu er spáð sautjánda sæti en Greta segist hafa gefið spám lítinn gaum. Hún sé ekki hjátrúarfull en þó fá lukkugripir frá Mosfellsbæ eilítið vægi í kvöld. „Við fengum tvo litla bangsa frá þeim. Og þeir verða með ykkur í græna herberginu? Já, þeir verða með okkur. En Jónsi, er hann hjátrúarfullur? Nei, það held ég ekki. Hann er reyndar með einhvern hatt með sér, en að öðru leyti þá held ég nú ekki," segir Greta. Keppnin hefst í kvöld klukkan sjö að íslenskum tíma og er íslenski hópurinn sjöundi á svið.
Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira