Innlent

Áhugi fyrir hjólaleigu að bandarískri fyrirmynd

Hugrún Halldórsdóttir skrifar
Ný hjólaleiga í Denver hefur hvatt borgarbúar til að hjóla sem nemur fimmhundruð og tuttugu hringum í kringum Ísland á ári. Líkur eru á að svipuðu verkefni verði komið á laggirnar í Reykjavík innan nokkurra ára.

Hjólaleigunni var komið á koppinn fyrir tveimur árum og nú má finna fimmhundruð hjól á fimmtíu og þremur stöðvum víðs vegar um þessa sexhundruðþúsundmanna borg. Á síðasta ári nýttu tvöhundruð þúsund sér fákana og hjóluðu 690 þúsund kílómetra eða um fimmhundruð og tuttugu sinnum í kringum Ísland. Þannig varð brennslan þrettán milljón kaloríur sem jafnast á við rúmlega fimmtíu þúsund hamborgara. Hjólreiðarnar skila ekki einungis góðri heilsu því áætlað er að hjólreiðamennirnir hafi komist hjá því að kaupa tæplega 1200 tonn af bensíni og olíu svo dæmi séu tekin en sá kostnaðurinn er brotabrot af því gjaldi sem ferðin á hjólunum kostar.

„Ársmeðlimur getur notað kortið sitt mörgum sinnum á dag," segir Parry W. Burnap, framkvæmdastjóri Denver Bike Sharing. „Þrjú þúsund manns var með um 60% notkunarinnar. Fjörutíu þúsund manns var með restina af notkuninni."

Félagið sem rekur leiguna nýtur styrkja frá einstaklingum, yfirvöldum og fyrirtækjum en eins og þið sjáið er töluvert um líflegar auglýsingar á hjólunum.

„Þessi rekstur er ekki í hagnaðarskyni. Hann er nú í jafnvægi. Við höfum starfað í tvo vetur og hvað lausafé varðar erum við í góðum málum. Við ætlum að bæta við 27 stöðvum á þessu ári," segir Parry.

Nokkrir einkaaðilar eru áhugasamir um að koma svipuðu verkefni á laggirnar hér á landi og hafa viðrað hugmyndir sínar við borgaryfirvöld. Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi segir Reykjavíkurborg til í að taka þátt og greiða götur fyrir áhugasama.

Undanfarin ár hefur verið unnið við uppbyggingu hjólreiðastíga í borginni og telur Gísli Marteinn það geta aukið líkur á að hjólaleiga líkt og í Denver og öðrum stórborgum verði að veruleika hér á landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×