Barnavernd Reykjavíkur hefur ekki fengið tilkynningu um árásina Jón Hákon Halldórsson skrifar 3. september 2012 14:58 Myndin, sem er sviðsett, er af barni á svipuðum aldri og drengurinn sem ráðist var á. mynd/ getty.
Barnavernd Reykjavíkur hefur ekki verið látin vita af því atviki þegar piltar á aldrinum 12-13 ára réðust á sex ára gamlan dreng fyrir helgi. Drengurinn var með bolta sem þeir ásældust. Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri barnaverndar Reykjavíkur, býst þó fastlega við því að barnavernd verði gert viðvart um málið að því gefnu að gerendurnir séu með lögheimili í Reykjavík. „Að öllu jöfnu hefði maður átt von á því að neyðarvaktin okkar hefði verið kölluð til," segir Halldóra Dröfn. Það gerðist hins vegar ekki og eins og fram kom í fréttum í morgun fékk lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ekki veður af málinu fyrr en að fréttir bárust af því í Fréttablaðinu í morgun. Þá hóf lögreglan strax sjálfstæða rannsókn á því. „Áhyggjuefnið hlýtur að vera fyrst og fremst gerendurnir, að það náist einhvern veginn að vinna með þá af því að þeir eru ekki orðnir fimmtán ára gamlir, samkvæmt þessari lýsingu, og ekki sakhæfir," segir Halldóra Dröfn. Hún segir að um leið og nöfn þessara drengja liggja fyrir muni barnavernd koma að þessum málum með foreldrum þeirra og finna lausn á því hvernig hægt er að uppræta þessa hegðun.
Tengdar fréttir Barnavernd skoði mál piltanna þriggja sem réðust á litla drenginn "Við erum búin að vera að ræða þetta hér," segir Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna, um mál piltanna þriggja sem réðust á sex ára gamlan dreng um helgina og beinbrutu hann. Piltarnir eru tólf til þrettán ára gamlir en þeir viltu ná í bolta sem litli drengurinn var með. 3. september 2012 12:04 Drengurinn ekki beinbrotinn heldur alvarlega tognaður Drengurinn sem ráðist var á í Bökkunum í Breiðholti um helgina er ekki jafn illa slasaður og í fyrstu var talið. Fjórir piltar á aldrinum 12 - 13 ára réðust á hann á fótboltavelli þar sem þeir ætluðu að taka af honum fótbolta. Fréttablaðið greindi frá því í morgun að drengurinn hefði beinbrotnað í árásinni. Í ljós hefur komið að drengurinn tognaði alvarlega á hendi og fékk að auki miklar blóðnasir. 3. september 2012 13:01 Þriggja pilta leitað eftir hrottalega árás á barn "Þetta var alveg hræðilegt. Þegar ég kom á svæðið liggur drengurinn blóðugur á jörðinni og þeir hlupu í burtu," segir Þórarinn Engilbertsson knattspyrnuþjálfari. Hann varð vitni að fólskulegri árás fjögurra 12 til 13 ára pilta á sex ára dreng. 3. september 2012 07:00 Foreldrar reyna að ná sáttum í fólskulegu líkamsárásarmáli Unnið er að því að finna lausn á alvarlegu líkamsárásarmáli á milli foreldra barna sem í hlut eiga, en Fréttablaðið greindi frá því í morgun að fjórir 12- 13 ára piltar hafi gengið í skrokk á sex ára dreng um helgina, með þeim afleiðingum að hann handleggs- og kinnbeinsbrotnaði. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Kópavogi hefur málið ekki borist embættinu enn þá. 3. september 2012 09:42 Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Erlent Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Innlent Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Innlent Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Innlent „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Innlent Fleiri fréttir Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Sjá meira
Barnavernd skoði mál piltanna þriggja sem réðust á litla drenginn "Við erum búin að vera að ræða þetta hér," segir Margrét María Sigurðardóttir, umboðsmaður barna, um mál piltanna þriggja sem réðust á sex ára gamlan dreng um helgina og beinbrutu hann. Piltarnir eru tólf til þrettán ára gamlir en þeir viltu ná í bolta sem litli drengurinn var með. 3. september 2012 12:04
Drengurinn ekki beinbrotinn heldur alvarlega tognaður Drengurinn sem ráðist var á í Bökkunum í Breiðholti um helgina er ekki jafn illa slasaður og í fyrstu var talið. Fjórir piltar á aldrinum 12 - 13 ára réðust á hann á fótboltavelli þar sem þeir ætluðu að taka af honum fótbolta. Fréttablaðið greindi frá því í morgun að drengurinn hefði beinbrotnað í árásinni. Í ljós hefur komið að drengurinn tognaði alvarlega á hendi og fékk að auki miklar blóðnasir. 3. september 2012 13:01
Þriggja pilta leitað eftir hrottalega árás á barn "Þetta var alveg hræðilegt. Þegar ég kom á svæðið liggur drengurinn blóðugur á jörðinni og þeir hlupu í burtu," segir Þórarinn Engilbertsson knattspyrnuþjálfari. Hann varð vitni að fólskulegri árás fjögurra 12 til 13 ára pilta á sex ára dreng. 3. september 2012 07:00
Foreldrar reyna að ná sáttum í fólskulegu líkamsárásarmáli Unnið er að því að finna lausn á alvarlegu líkamsárásarmáli á milli foreldra barna sem í hlut eiga, en Fréttablaðið greindi frá því í morgun að fjórir 12- 13 ára piltar hafi gengið í skrokk á sex ára dreng um helgina, með þeim afleiðingum að hann handleggs- og kinnbeinsbrotnaði. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Kópavogi hefur málið ekki borist embættinu enn þá. 3. september 2012 09:42