Tvær létust af völdum leghálskrabbameins Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 3. september 2012 19:35 Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins. Mynd/Valli
Tvær ungar konur létust af völdum leghálskrabbameins á síðasta ári. Forstjóri Krabbameinsfélagsins segir það mikið áhyggjuefni að dregið hafi úr því að konur komi í krabbameinsleit. Helmingi fleiri konur greindust með leghálskrabbamein á alvarlegu stigi á árunum 2008 til 2012 miðað við árin 1998 til 2002. Talið er að ástæðan sé meðal annars sú að færri konur mæta í reglulega krabbameinsleit en áður. „Þá hefur dregið úr mætingu í leitina og það hefur dregið úr henni ekki síst hjá ungum konum og það er mikið áhyggjuefni," segir Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins. „Því miður er það þannig að krabbamein greinast núna á efri stigum en oft var nú áður og konur hafa þá stundum þá ekki mætt í leitina eða ekki látið taka strok frá leghálsi í mörg ár á undan. Það er því miður oft þannig," segir Ragnheiður og veit dæmi þess að oft hafi liðið áratugur án þess konur mæti í leit. Á hverju ári látast að meðaltali tvær konur hér á landi af völdum leghálskrabbameins. Á síðasta ári létu tvær konur sem aðeins voru 24 og 26 ára lífið eftir baráttu við krabbameinið. Þær tvær eru þó ekki dæmi um konur sem ekki mættu reglulega í krabbameinsleit. „Ef að þetta hins vegar greinist á fyrstu stigum þá er leikurinn mun auðveldari og hægt er að koma í veg fyrir flest krabbamein. Það er svo sérstakt með krabbamein í leghálsi að það er hægt að finna forstig. Það er ekki einu sinni orðið krabbamein þegar hægt er að finna vísbendingar. Þess vegna er svo mikið í húfi að við konur mætum og notum þetta frábæra tækifæri sem að okkur býðst og við notum það," segir hún.
Tengdar fréttir Reglubundin leghálskrabbameinsleit bjargar mannslífum Kona sem greindist með leghálskrabbamein segir það bjarga lífi kvenna að fara nógu snemma í krabbameinsleit. Hún hafi verið kærulaus og dregið það enda hafi henni fundist fráleitt að jafn ung kona og hún gæti fengið slíkt krabbamein. 3. september 2012 18:54 Sífellt fleiri konur greinast með leghálskrabbamein Sífellt fleiri konur greinast með leghálskrabbamein á alvarlegra stigi en áður. Þannig þurfa tvöfalt fleiri konur að fara í geisla- eða lyfjameðferð vegna krabbameinsins nú en fyrir áratug. Yfirlæknir segir ástæðuna þá að færri konur mæti reglulega í krabbameinsleit. 3. september 2012 13:16 Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Innlent Fleiri fréttir Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Sjá meira
Reglubundin leghálskrabbameinsleit bjargar mannslífum Kona sem greindist með leghálskrabbamein segir það bjarga lífi kvenna að fara nógu snemma í krabbameinsleit. Hún hafi verið kærulaus og dregið það enda hafi henni fundist fráleitt að jafn ung kona og hún gæti fengið slíkt krabbamein. 3. september 2012 18:54
Sífellt fleiri konur greinast með leghálskrabbamein Sífellt fleiri konur greinast með leghálskrabbamein á alvarlegra stigi en áður. Þannig þurfa tvöfalt fleiri konur að fara í geisla- eða lyfjameðferð vegna krabbameinsins nú en fyrir áratug. Yfirlæknir segir ástæðuna þá að færri konur mæti reglulega í krabbameinsleit. 3. september 2012 13:16