Yfirtaka ÍLS á lánum lífeyrissjóða skoðuð 22. maí 2012 06:00 Starfshópur á að skila niðurstöðu fyrir helgi um hvort mögulegt sé að Íbúðalánasjóður komi að lánsveðslánum lífeyrissjóðanna svo hægt sé að fella þau niður að 110%, líkt og gert hefur verið við önnur lán. fréttablaðið/hari
Starfshópur skoðar nú ýmsar útfærslur á því að Íbúðalánasjóður taki yfir lánsveðslán lífeyrissjóðanna. Ráðherra útilokar enga leið sem geti leyst hútinn. Lífeyrissjóðirnir vilja ekki fella niður lánin þar sem lög heimila þeim það ekki. Starfshópur skoðar nú allar mögulegar leiðir til að Íbúðalánasjóður (ÍLS) taki yfir lánsveðslán lífeyrissjóðanna, en það eru lán sem byggja meðal annars á veðum ábyrgðarmanna. Líkt og komið hefur fram hafa lífeyrissjóðirnir hafnað því að fella þau lán niður að 110%, líkt og gert hefur verið við önnur lán, þar sem þeim sé ekki heimilt að afskrifa innheimtanlegar kröfur. Lífeyrissjóðirnir lögðu til að Íbúðalánasjóður tæki lánin yfir gegn ríkisskuldabréfum. Sigurður Erlingsson, framkvæmdastjóri ÍLS, segir vinnu starfshópsins þó ekki einblína á þá leið. „Vinnan er ekki einskorðuð við það. Það er meira verið að finna hvar gætu verið einhverjir sáttafletir í málinu,“ segir Sigurður. „Það eru til ýmsar útfærslur á þessu og það er hægt að gera þetta með svo margvíslegum hætti.“ Sigurður segir heildarumfang lána ljóst, en um 2.400 lán er að ræða. „Það er heildarbrúttóstaðan, en svo er bara einhver lítill hluti lánanna sem er yfir 110%. Spurningin er hvort farin verði sú leið að við tökum yfir allt lánasafnið, eða hvort lánin verði hreinlega færð niður og bara tekið á því sem út af stendur.“ Sigurður segir mögulegan kostnað óljósan og miklu máli skipta hvaða leið verði farin, verði þetta að veruleika. „Þetta mun alltaf þýða aukin útgjöld fyrir ríkissjóð.“ Steingrímur J. Sigfússon, ráðherra efnahagsmála, segir að verði fundin einhver leið á þessum nótum sé ljóst að Íbúðalánasjóður verði dráttarklár í málinu. Þess vegna sé starfið nú að mestu á hans herðum. „Það er meiningin að láta á það reyna hvort þessar hugmyndir sem lífeyrissjóðirnir töldu sig geta skoðað með okkur reynist færar og framkvæmanlegar.“ Hópurinn mun hafa hraðar hendur og skila niðurstöðum sínum fyrir helgi. Hann skipa fulltrúar efnahags- og viðskiptaráðuneytisins og fjármálaráðuneytisins, auk ÍLS og lífeyrissjóðanna. Þá hafa Samtök fjármálafyrirtækja komið að vinnunni. Steingrímur segir mikilvægt að hafa hraðar hendur, en oft geti verið um snúin mál að ræða. Ekkert sé hins vegar útilokað fyrir fram. „Engin leið sem mögulega er fær til að leysa þann hnút sem eftir stendur verður útilokuð.“ kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Erlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Erlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Innlent Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Innlent Halldór Árni Sveinsson er látinn Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Sveitarfélögin óþreyjufull og krefjast svara frá ráðherrum Fiskibátur varð aflvana við Stykkishólm Vegabréfsgjaldið hækkaði um fimm þúsund milli ára „Galið að komast að þessari niðurstöðu“ Krefjast lögbanns við laxveiðum Iðufólks í Stóru-Laxá Telur bikblæðingu hafa valdið brunanum Fólk eigi að hugsa sig tvisvar um ef því er ekki hleypt inn á heimilið Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið Segir gríðarlegt álag á miðakaupendum í sumar Vilji til að framlengja ETS sérlausn og hvalveiðar brutu ekki gegn lögum Íslendingur reyndi að smygla milljónum í reiðufé frá Grænlandi Maðurinn sem sóttur var í Glerárdal er látinn Hálftíma dauðastríð ekki talið brot á lögum um velferð dýra Halldór Árni Sveinsson er látinn Atli sagður milliliðurinn í Straumsvíkurmálinu Krefjast tæps milljarðs af félagi Bergþórs Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Maður á áttræðisaldri dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Þyrla og björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði „Imprað á því að við séum ekki baðhús og verðum aldrei baðhús“ „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Sjá meira