Umræðu lokið um göng en afdrif óljós Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar 13. júní 2012 11:00 vaðlaheiði Fyrirhuguð göng verða 7,4 km að lengd og munu stytta þjóðveg 1 um 15,7 km, eða um rúmar 10 mínútur sé ekið á 90 km hraða. Heildarkostnaður við göngin verður um 11 milljarðar og lánar ríkið 8,7 milljarða.fréttablaðið/kristján kristjánsson
Umræðu um ríkisábyrgð vegna fjármögnunar Vaðlaheiðarganga lauk á Alþingi í gær. Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra fer fram á heimild fyrir ríkissjóð til að undirrita lánasamning við Vaðlaheiðargöng hf. vegna framkvæmda við göngin fyrir allt að 8,7 milljarða króna. Félagið sjálft, eignir þess og tekjustreymi eiga að vera fullnægjandi tryggingar fyrir láninu. „Hér er um afar brýnt verkefni að ræða sem mun koma þjóðinni allri til góða í framtíðinni,“ sagði Oddný þegar hún mælti fyrir frumvarpinu. Hún sagði göngin vera á samgönguáætlun og ef ekki yrði farið í framkvæmdina með þessum hætti væru allar líkur á að ríkissjóður myndi kosta hana að fullu þegar þar að kæmi. „Með því að vinna með heimamönnum að framgangi þessa verkefnis í sérstöku félagi, í stað þess að ríkissjóður kosti framkvæmdina að fullu þegar að henni kemur í samgönguáætlun, er ríkið að ná fram miklum ávinningi.“ Þeir sem tala gegn málinu hafa bent á að það sé neðarlega á samgönguáætlun og önnur göng séu þar í meiri forgangi. Ekki sé rétt að taka eina framkvæmd fram yfir opinbera stefnumótun. Þá hefur verið sett spurningarmerki við aðkomu ríkisins að málinu. „Hér er um aðferð að ræða sem ber nokkurn keim af því, svo vægt sé til orða tekið, að verið sé að fara fram hjá efnahag ríkisins með þetta verkefni,“ sagði Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, þegar málið var lagt fram. „Það er í þessu áhætta sem á eftir að meta miklu betur en gert hefur verið. Þrátt fyrir að verkefnið sem slíkt sé fallegt, jákvætt og gott þá er verið að koma með það inn í þingið á forsendum sem ég er hræddur um að standist ekki.“ Meirihluti fjárlaganefndar mælir með því að frumvarpið verði samþykkt óbreytt. Ákveðin áhætta felist í því en samfélagslegur ávinningur verksins sé umtalsverður.
Mest lesið Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra Innlent Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Innlent Flutti til Reykjavíkur í dag Innlent Féll í Jökulsárlón Innlent „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Innlent Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Innlent Uppfylltu öll skilyrði nema aldurstakmarkið Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Drífa Snædal snýr aftur Innlent Þetta eru launin sem frambjóðendur geta vænst með kjöri í vor Innlent Fleiri fréttir „Þarf maður að fara að finna einhverja nýja fjöru?“ „Skaðinn er ekki skeður þó að járnbrautarslysið vofi yfir“ Fjölskyldufaðir þungt haldinn á spítala eftir alvarlega árás á þorrablóti Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd „Það er ekkert sem tekur við og enginn sem ber ábyrgð“ Drífa Snædal snýr aftur Goddur jarðsunginn Tifandi tímasprengja, oddviti í beinni og breytt Reynisfjara Handtekin fyrir að beita opinberan starfsmann ofbeldi „Þörfin er gríðarleg“ Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Blíðan haft áhrif á gróður sem lætur þó ekki plata sig Reiknar með einu gosi í viðbót Flutti til Reykjavíkur í dag Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Réttað yfir manni sem er grunaður um að nauðga barni og konu sinni Saka stjórnendur Bifrastar um að hafa beitt nemendur þrýstingi Saka stjórnendur um að þrýsta á nemendur að styðja rektor Biðla enn til almennings sjö árum eftir hvarf Jóns Þrastar Þorsteinn fær áheyrn Hæstaréttar Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í borginni Stjórnarformaðurinn verður forstjóri Reykjalundar Íslenska ríkið ræður lobbýista í Washington Jarðskjálftahrinan við Eldey heldur áfram Þetta eru launin sem frambjóðendur geta vænst með kjöri í vor „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför“ Fjórir handteknir í tengslum við líkamsárásir „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Sjá meira