Innlent

Óskar Hrafn hættir á Fréttatímanum

Óskar Hrafn Þorvaldsson.
Óskar Hrafn Þorvaldsson.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, fréttastjóri Fréttatímans, mun láta af störfum á morgun, en hann hefur fylgt Fréttatímanum frá stofnun blaðsins. Jón Kaldal hætti einnig störfum á blaðinu fyrir skömmu en Óskar segir þær hræringar ekkert tengjast sínum starfslokum.

Spurður hvað hann ætli að taka sér fyrir hendur svarar Óskar því að hann ætli sér að helga tíma sínu ákveðnu verkefni sem sé á byrjunarreit. Hann vildi þó ekki segja um hvað það snérist eða hvort það væri fjölmiðlatengt.

Óskar hefur þó mörg járn í eldinum, þannig mun glæpasagana hans, Martröð millanna, koma út í Þýskalandi eftir níu daga. Óskar segir stafslok sín ekki tengda óánægju og því til marks þá mun hann eiga áfram hlut sinn í blaðinu.

„Annars er ég bara að fara að klára þetta blað og svo hætti ég á morgun," segir Óskar að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×