Þurfa að gangast undir ítarlega leit fyrir framan eftirlitsmyndavél Hugrún Halldórsdóttir skrifar 13. júní 2012 18:36
Allir starfsmenn íþróttavöruverslunarinnar Sports Direct þurfa að gangast undir ítarlega leit fyrir framan eftirlitsmyndavél þegar þeir yfirgefa vinnustaðinn. Kvartað hefur verið til VR vegna fyrirkomulagsins. Framkvæmdarstjórinn segir sömu reglur gilda í öllum verslunum keðjunnar. Leitin er gerð fyrir framan eftirlitsmyndavél við anddyrið þar sem viðskiptavinir eru á ferðinni. Starfsmaður sem er á leið út úr versluninni þarf að afhenta yfirmanni yfirhöfn sína sem gengur úr skugga um að engin vara sé þar falin án þess þó að fara í vasana. Ef starfsmaðurinn er með tösku skal hún opnuð og sá sem sér um leitina lítur þar ofan í auk þess sem starfsmaður þarf að sýna að ekkert sé falið í hálsmáli og bolur skal dreginn upp svo sjáist í buxnastreng. Þá þarf starfsmaðurinn að lyfta upp buxnaskálmum svo sjáist í sokka en ætlast er til þess að starfsmenn séu í hvítum sokkum svo auðveldara sé að sjá í gegnum þá. Í samtali við fréttastofu sagðist starfsmanni Sports Direct líða líkt og glæpamanni vegna fyrirkomulagsins en kvartað hefur verið til VR vegna þessa og er lögmaður félagsins með málið í skoðun. Persónuvernd hefur þó ekki fengið kvörtun inn á borð til sín og getur ekki lagt mat á lögmæti fyrirkomulagsins án þess að skoða málið nánar. Framkvæmdastjóri Sports Direct hér á landi segist ekki hafa fengið kvörtun frá starfsmönnum en tekur fram að þeim hafi eflaust fundist fyrirkomulagið skrýtið til að byrja með. Allar verslanir keðjunnar bresku, sem eru um fimmhundruð talsins, fylgi sömu öryggisreglum en þær eru tilkomnar vegna þess hve hátt hlutfall af allri rýrnum er starfsmannatengdur.
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Sjá meira