Innlent

Rándýrum gítar stolið úr bíl

Brotist var inn í bíl við Stórholt í Reykjavík á tólfta tímanum í gærkvöldi og úr honum stolið forláta kassagítar, sem metinn er á 850 þúsund krónur.

Um tvö leitið í nótt hafði lögreglan svo afskipti af þekktum afbrotamanni í Kópavogi og var sá með kassagítar og fleira í fórum sínum. Við nánari athugun kom í ljós að þar var kominn gítarinn góði, og var honum þegar komið til eigandans, sem væntanlega hefur fagnað málalokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×