Innlent

Druslugangan haldin í annað sinn

María Lilja Þrastardóttir er einn af skipuleggjendum Druslugöngunnar sem í ár gengur undir yfirskriftinni Meint-Drusluganga.
María Lilja Þrastardóttir er einn af skipuleggjendum Druslugöngunnar sem í ár gengur undir yfirskriftinni Meint-Drusluganga. Fréttablaðið/valli
„Þetta gekk rosalega vel í fyrra og þátttakan var framar öllum vonum. Þess vegna er ekkert því til fyrirstöðu að endurtaka leikinn í ár," segir María Lilja Þrastardóttir, einn af skipuleggjendum Druslugöngunnar sem haldin verður þann 23. júní næstkomandi.

Yfirlýst markmið Druslugöngunnar er að færa ábyrgðina úr höndum þolenda kynferðisofbeldis yfir á gerendur og varpa ljósi á það hvernig samfélagið er tilbúið að leyfa brotamanni að njóta vafans á meðan raunveruleg fórnarlömb eru vænd um meiðyrði.

Nokkrar breytingar eru á göngunni í ár sem gengur undir yfirskriftinni Meint-Drusluganga. „Við erum aðeins að breyta áherslunum í ár og viljum útrýma orðinu meint í orðræðunni um kynferðisafbrot. Við höfum til dæmis tekið eftir því að orðið „meint" er ekki notað þegar fjallað er um neina aðra brotaflokka," segir María Lilja en hugmyndin er að fá fjölmiðlafólk til að skrifa pistla í þágu göngunnar og birta í sínum miðli. „Við erum strax búin að fá viðbrögð frá fólki sem vill skrifa pistla fyrir okkur en með því getum við skapað umræðu í samfélaginu varðandi málefnið."

Í fyrra mættu um 3.000 manns í gönguna sem verður með sama sniði í ár þar sem gengið verður frá Hallgrímskirkju, niður Skólavörðustíginn og endað á Ingólfstorgi þar sem ræðuhöld og tónlistaratriði verða á boðstólum. María Lilja segir skipulagninguna ganga vel en öll fjárframlög eru vel þegin. Nánari upplýsingar varðandi Druslugönguna er hægt að nálgast á Facebooksíðu þeirra og þeim sem hafa áhuga á að skrifa pistla er bent á póstfangið meintdrusluganga@gmail.com. - áp




Fleiri fréttir

Sjá meira


×