Verjandi líkti al-Thani málinu við mál Mladic Jón Hákon Halldórsson skrifar 24. maí 2012 21:34 Verjendur sakborninga í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Frá vinstri, Gestur Jónsson, Hörður Felix Harðarson, Karl Axelsson og Ragnar H. Hall. mynd/ valli.
Ragnar H. Hall, verjandi Ólafs Ólafssonar, í al Thani málinu líkti stöðu sakborninga þess máls við stöðu Radko Mladic við fyrirtöku í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Deilt hefur verið um hvort verjendur og sakborningarnir, Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður, Ólafur Ólafsson, einn aðaleigenda bankans fallna, og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, ættu að fá aðgang að rannsóknargögnum. Þar er um að ræða tölvupósta sem sérstakur saksóknari lagði hald á þegar málið var til rannsóknar og skrá yfir símtöl sem hleruð voru. Sérstakur saksóknari vill ekki láta þessi gögn af hendi. Verjendur hafa áður farið fram á að fá mynddiska með myndum af upptökum af yfirheyrslum, en Hæstiréttur hefur dæmt að sérstökum saksóknara beri ekki að láta mynddiskana af hendi. Þegar Ragnar Hall gerði grein fyrir kröfu verjendanna í dag minnti hann á þær aðstæður sem hefðu komið upp í máli gegn Radko Mladic fyrir stríðsglæpadómstólnum í Haag þann 16. maí síðastliðinn. Þá fyrirskipaði dómari að hlé yrði gert á réttarhöldunum vegna þess að sækjandi hafi ekki látið verjendum í té málsgögn sem hann hefði átt að láta þá hafa. Verjendur Mladic fóru fram á sex mánaða hlé, en gert er ráð fyrir að réttahöldin hefjist á næstu dögum Sérstakur saksóknari hefur boðið sakborningum og verjendum að skoða skrá yfir símtölin og útprentun af tilteknum símtölum sem eru á meðal rannsóknargagna í húsakynnum sérstaks saksóknara. Þar geti þeir einnig fengið útprentaða tiltekna tölvupósta. Ragnar sagði í dag að verulegt óhagræði væri af þessu fyrir bæði verjendur og sakborninga.
Tengdar fréttir Tekur 500 klukkustundir að fara yfir málskjölin Ætla má að það taki verjendur 500 klukkustundir að fara yfir málskjöl í al-Thani málinu gegn fyrrverandi stjórnendum Kaupþings. Þetta sagði Ragnar H. Hall, verjandi eins sakborningsins, við fyrirtöku í morgun. Skjölin eru á 7000 blaðsíðum. 24. maí 2012 14:08 Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent Fleiri fréttir Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Sjá meira
Tekur 500 klukkustundir að fara yfir málskjölin Ætla má að það taki verjendur 500 klukkustundir að fara yfir málskjöl í al-Thani málinu gegn fyrrverandi stjórnendum Kaupþings. Þetta sagði Ragnar H. Hall, verjandi eins sakborningsins, við fyrirtöku í morgun. Skjölin eru á 7000 blaðsíðum. 24. maí 2012 14:08