Verjandi Barkar furðar sig á umfjöllun fjölmiðla 24. maí 2012 18:49 mynd/Stefán
Verjandi Barkar Birgissonar, sem grunaður er um að hafa banað mann á Litla Hrauni 17. maí síðastliðinn ásamt Annþóri Kristjáni Karlssyni, furðar sig á því hvernig rannsóknargögn málsins hafi ratað í hendur fjölmiðla. Í tilkynningu frá Inga Frey Ágústssyni, hdl., kemur fram að ekkert bendi til að Börkur beri ábyrgð á dauða Sigurðar. „Þá er rétt að halda því til haga að samkvæmt skýrslu réttarmeinafræðings var ekki hægt að fullyrða hvort dánarorsök hins látna væri af mannavöldum eða ekki," segir í tilkynningunni. Þá bendir Ingi á að þeir Annþór og Börkur njóti nú réttarstöðu sakbornings í málinu, samt sem áður hafi fjölmiðlar þó greiðari aðganga að upplýsingum en þeir eða verjendur þeirra. Hægt er að lesa tilkynninguna í heild sinni hér fyrir neðan: Reykjavík 24. maí 2012. Undirritaður, verjandi Barkar Birgissonar, vill að gefnu tilefni koma eftirfarandi á framfæri við fjölmiðla: Það hefur ekki farið framhjá landsmönnum að hörmulegur atburður átti sér stað í fangelsinu að Litla-Hrauni þann 17. maí s.l. Var skjólstæðingur minn fyrr í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna þessa til 13. júní n.k. af héraðsdómi Suðurlands. Hafði hann þá verið yfirheyrður í gærdag þar sem hann lýsti því sem fram fór á fangagangi umræddan dag. Viðstaddir þá skýrslutöku var undirritaður, sakborningur og tveir lögreglumenn frá lögreglunni á Selfossi. Síðar þann sama dag er skýrsla skjólstæðings míns lesin nánast orðrétt í fréttatíma a.m.k. einnar útvarpsstöðvar. Hvorki undirritaður né sakborningur höfðu haft samband eða gefið nokkrar upplýsingar um málið til fjölmiðla. Rannsókn málsins er á upphafsstigum og því viðkvæm. Verjendum hafa ekki verið afhent nein þau gögn sem þó eru tiltæk lögreglu. Af einhverjum orsökum virðast fjölmiðlar hafa greiðari aðgang að gögnum málsins. Þá er rétt að halda því til haga að samkvæmt skýrslu réttarmeinafræðings var ekki hægt að fullyrða hvort dánarorsök hins látna væri af mannavöldum eða ekki. Það er því ekkert sem bendir til þess að skjólstæðingur minn eigi hér hlut að máli á þessu stigi málsins. Vert er að hafa í huga að nú njóta tveir menn réttarstöðu sakbornings, en fjölmiðlar virðist þó fá betri og greiðari upplýsingar um rannsókn þess en þeir eða verjendur þeirra. Því má velta fyrir sér hvort það réttarríki sem við búum við sé á villigötum. Virðingarfyllst, Ingi Freyr Ágústsson, hdl.
Mál Annþórs og Barkar Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira