Catalina að koma en flugsýningu frestað Kristján Már Unnarsson skrifar 24. maí 2012 15:16 Catalina við afgreiðslu Flugfélagsins á Reykjavíkurfluvelli. Þessar flugvélar áttu stóran þátt í uppbyggingu innanlandsflugsins á árunum 1944-1961. Mynd/Flugmálafélag Íslands.
Catalina-flugbáturinn, sem verður helsti sýningargripur flugdagsins í Reykjavík, er nú á leiðinni til Íslands og áætlar lendingu á Reykjavíkurflugvelli um klukkan hálfsjö í kvöld. Flugmálafélag Íslands hefur hins vegar ákveðið að fresta flugsýningunni fram á mánudag, annan í hvítasunnu, vegna veðurs. Catalinan lagði af stað frá Prestwick í Skotlandi til Íslands í hádeginu og var flugtak kl. 12.14. Flugtími er áætlaður sex og hálf klukkustund. „Við erum búnir að taka ákvörðun um að fresta sýningunni til mánudagsins, annars í hvítasunnu, vegna veðurs ," sagði Matthías Sveinbjörnsson, stjórnarmaður í Flugmálafélaginu, í dag, og sagði veðurspána fyrir mánudag mun betri. Flugvélin heldur hinsvegar sínu striki, er á leiðinni, og áætlar að lenda um kl. 18:15. Henni verður lagt við þristinn Pál Sveinsson hjá Flugþjónustunni, aftan við Loftleiðabygginguna. Þar mun almenningi gefast kostur á að skoða vélina í návígi á mánudag milli klukkan 12 og 16 og verður það í fyrsta sinn í áratugi sem slíkt tækifæri gefst hérlendis Catalina-flugvélar skipa einn stærsta sessinn í flugsögu Íslands. Í október árið 1944 varð Catalina Flugfélags Íslands, TF-ISP, fyrsta íslenska flugvélin til þess að fljúga milli landa og hún flaug einnig fyrsta millilandaflug Flugfélags Íslands sumarið 1945. Catalinur Flugfélagsins og Loftleiða áttu jafnframt stóran þátt í uppbyggingu innanlandsflugs á árunum 1944 til 1961 þegar flugvellir voru fáir, samgöngur á landi erfiðar og sjóferðir tímafrekar. Þá notaði Landhelgisgæslan einnig Catalinu, TF-RÁN, á árunum 1954 til 1963, og kom hún mjög við sögu í þorskastríði Íslendinga við Breta 1958-1961.
Mest lesið Ástand á stúdentagörðum: Ítrekuð innbrot, mat stolið, dýnur í kjallara og hland á gólfi Innlent „Það kemur að því að við lendum í veseni“ Innlent Yfirgefið hreysi víkur fyrir hundrað íbúðum Innlent „Mér hefur aldrei verið sýnd jafn mikil vanvirðing“ Innlent Lögregla hafi hlaupið á sig á Siglufirði: „Þetta eru einstök prúðmenni“ Innlent „Geta verið dauðsföll, þú veist ekkert hvað er í þessu“ Innlent Konan er fundin Innlent „Selir“ skutu óvopnaða borgara í leyniaðgerð í Norður-Kóreu Erlent Hefur sætt umsáturseinelti í 14 ár: „Þetta hefur bara rústað lífi mínu“ Innlent Skoða að banna trans fólki að eiga skotvopn Erlent Fleiri fréttir Deila lyfseðlum fyrir þyngdarstjórnunarlyf og undankeppni HM hefst Starfsfólk Alcoa vilji setja fyrirtækinu mörk Lögregla hafi hlaupið á sig á Siglufirði: „Þetta eru einstök prúðmenni“ Ætla að rannsaka meint undirboð á kísilmálmi „Mér hefur aldrei verið sýnd jafn mikil vanvirðing“ Hélt eiginkonu og fimm börnum í heljargreipum Breyta Korpuskóla til að anna eftirspurn í Klettaskóla Vegabætur á Vestfjörðum opni tækifæri í vetrarferðamennsku Vilja aðgerðir strax Ástand á stúdentagörðum: Ítrekuð innbrot, mat stolið, dýnur í kjallara og hland á gólfi „Geta verið dauðsföll, þú veist ekkert hvað er í þessu“ Öllum börnum undir sex mánaða boðin forvörn gegn RS veiru Vildu fá að vita hvort ríkisstyrkir hefðu farið í málsóknir gegn orkuframkvæmdum Vara við ólöglegum megrunarlyfjum sem eru í umferð Konan er fundin Sextán ára kveikti í herbergi sínu Þremur sleppt úr haldi og brotaþoli útskrifaður „Það kemur að því að við lendum í veseni“ Ekki hægt að þaga þegar stjórnmálamenn leika sér að því að særa fram tröllin 252,6 milljónir runnið í ríkissjóð úr dánarbúum án lögerfingja á tíu árum Þrjú söfn í eina sæng Yfirgefið hreysi víkur fyrir hundrað íbúðum Líkamsárás á gistiheimili „Ekkert óeðlilegt við það að endurskoða þetta kerfi“ Tveir á sjúkrahús eftir harðan árekstur Vegurinn yfir Kjöl gerir ferðalöngum lífið leitt Stefna um mikla og hraða fólksfjölgun „alið á stéttaskiptingu á Íslandi“ Fimm handteknir í aðgerðum sérsveitar Ættum að fara varlega í orkudrykki með sætuefnum „Mér fannst þetta vera svolítil vonbrigði“ Sjá meira