Valur fimmta Reykjavíkurfélagið hjá Takefusa Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. desember 2012 06:45 Björgólfur með Magnúsi Gylfasyni þjálfara.
Björgólfur Takefusa gekk í gær frá tveggja ára samningi við Valsmenn og mun spila með liðinu í Pepsi-deildinni næsta sumar. Valur er fimmta Reykjavíkurfélag Björgólfs á ferlinum og enn fremur fjórða félagið sem hann spilar með í Pepsi-deildinni á síðustu fjórum sumrum. Björgólfur er á 32. aldursári og hefur skorað 83 mörk í 168 leikjum í efstu deild. Hann er aðeins einn af ellefu mönnum sem hafa brotið 80 marka múrinn og vantar fjögur mörk til þess að komast upp fyrir Hörð Magnússon og þar með upp í sjötta sætið. „Ég er ótrúlega ánægður að þetta skyldi ganga eftir. Að sama skapi er erfitt að fara úr Víkinni. Eftir að ég hitti mennina í kringum klúbbinn og Magga Gylfa þá varð ég alltaf spenntari fyrir verkefninu. Ég held að það séu mjög skemmtilegir tímar fram undan hjá Val," sagði Björgólfur við Hjört Hjartarson í útvarpsþættinum Boltanum á X-inu 977 í gær þar sem kom fyrst fram að hann væri á leiðinni á Hlíðarenda. Björgólfur hefur verið samningsbundinn Víkingum undanfarin tvö ár en liðið féll úr deildinni 2011 og Björgólfur var í láni hjá Fylki í sumar.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira