Hrunið hafði lítil áhrif á viðskiptin 19. júní 2012 04:30 Þeir Ólafur og Tyrfingur Leóssynir reka Jeppasmiðjuna á Ljónsstöðum við Selfoss, þar sem þeir ólust upp og hafa búið alla tíð. Fréttablaðið/Vilhelm
Bræðurnir Ólafur og Tyrfingur Leóssynir reka Jeppasmiðjuna sem er að finna skammt suður af Selfossi. Þeir eiga stóran hóp viðskiptavina á höfuðborgarsvæðinu sem setur það ekki fyrir sig að keyra tugi kílómetra eftir þjónustu þeirra. Bræðurnir Ólafur og Tyrfingur Leóssynir á bílaverkstæðinu Jeppasmiðjunni eiga fjölmarga trygga viðskiptavini af höfuðborgarsvæðinu, sem leggja á sig að keyra þónokkurn spöl eftir sérfræðiþekkingu þeirra. Verkstæðið þeirra er ekki beinlínis í alfararleið, en það er að finna á Ljónsstöðum, um fimm kílómetra suður af Selfossi. Þeir kannast þó ekkert við það sjálfir að vera út úr. „Þetta er styttri vegalengd heldur en stórborgarbúinn víðast hvar ferðast til vinnu á hverjum degi,“ segir Ólafur og hefur nokkuð til síns máls. Jeppasmiðjan er sérhæfð í sjálfskiptiviðgerðum, varahlutasölu og jeppaviðgerðum. Alls starfa um tuttugu manns á verkstæðinu að þeim bræðrum meðtöldum. Eiginkona Ólafs er fjármálastjóri, eiginkona Tyrfings var þar líka um tíma, auk þess sem aðrir fjölskyldumeðlimir stíga inn eftir þörfum. „Þessi er víst eitthvað ættaður frá mér,“ segir Ólafur og bendir á ungan mann sem stendur einbeittur við sjálfskiptingu úr jeppa og setur hana saman eftir leiðbeiningum á tölvuskjá. Hans starf er einkennandi fyrir breytta tíma í þessum bransa, þar sem tölvurnar leika stöðugt mikilvægara hlutverk. „Þegar við byrjuðum var nýjasta tækið í bransanum faxtæki. Í dag er þetta allt orðið tölvustýrt.“ Þeir segja breytingarnar svo örar að þeir hafi verið í stöðugri endurmenntun alla tíð. Það sé helst núna sem hægt hafi á, enda lítið um bílainnflutning, þó þeir hafi enn þá nóg að gera. „Við erum mikið í sjálfskiptiviðgerðum, sem geta kostað allt að 600 þúsund krónur. Einhvern veginn virðist fólki þó ekki ganga verr að borga núna en fyrir hrun,“ segir Ólafur. Jeppasmiðjuna stofnuðu þeir bræður árið 1990. „Við vorum báðir í vinnu hjá Ræktunarsambandinu uppi á Selfossi. Á þeim árum var ekki unnið á veturna svo við vorum alltaf eitthvað að dútla í bílunum á sumrin. Svo var þetta orðið þannig að maður mátti ekki vera að því að hætta í hobbíinu til að byrja að vinna á haustin. Þá stofnuðum við fyrirtækið,“ rifjar Tyrfingur upp. Þeir bræður búa báðir tveir með sínum fjölskyldum á jörðinni. Þar býr einnig systir þeirra, en hún er með búskap á bænum sem þau ólust upp á. En fá þeir bræður aldrei nóg af nærveru hvor annars? „Þú sérð að við stöndum hér hvor á sínum staðnum,“ segir Ólafur og Tyrfingur botnar: „Eins langt í burtu hvor frá öðrum og mögulegt er.“ Þeir brosa samt báðir glettnislega og sjá má að lítil alvara er að baki orða þeirra. Þeir kunna enda vel við sig á æskuslóðum, segja Suðurlandsundirlendið prýðilegan stað til að búa á og sjá því enga ástæðu til að flytja. holmfridur@frettabladid.is
Mest lesið Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sjá meira