Innlent

Makrílvertíðin á rólegum nótum

Makrílvertíðin fer rólega af stað en nú eru nokkur skip að veiðum suður af Vestmannaeyjum og eitt eða tvö skip leita fyrir sér suðaustur af landinu.

Stóru vinnsluskipin, sem vinna og frysta aflann um borð, eru þó flest eða öll búin að landa einu fullfermi af afurðum, en skipin sem veiða til fullvinnslu í landi, hafa landað oftar.

Að sögn sjómanna er makríllinn enn dreifður þannig að ekki er komin kraftur í veiðarnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×