Hvítá notuð til vökvunar Karen Kjartansdóttir skrifar 19. júní 2012 19:01
Þurrkar hafa verið miklir í sumar og hvað gera bændur þá? Við Hvítá hefur vökvunarbúnaði verið komið fyrir svo hægt sé að vökva grænmetisgarðana við bakka hennar með árvatninu, dag og nótt. Á Flúðum fagnar fólk því ekki að lítið rigni enda veltur lífsafkoma þess á regninu. Miklir þurrkar framan af sumri hafa kallað á skipulega vökvun á túnum. Friðrik Rúnar Friðriksson ræktunarstjóri á Jörfa fagnar því að Hvítá liðast fögur við hlið grænmetisbeðana. Á myndskeiðinu sem fylgir fréttinni má sjá Friðrik tengja slöngu ofan í ána, vatnið er því næst leitt með slöngu í dælu sem dreifir því um kálgarðana. „Hérna erum við að vökva spergilkál og hvítkál með gæsinni okkar," segir Friðrik Rúnar Friðriksson, ræktarstjóri á Jörfa. „Við dælum yfir nótt og dag 400 lítrum af vatni á mínútu. Það hefur ekki rignt hérna í bráðum mánuð, utan þess að það komu smá skúrir í gær, þannig við verðum að bjarga okkur á þessu." Og ekki er annað að sjá en að grænmetið í beðunum spretti vel. „Þetta er algjör björgun hérna núna, hér á bökkum Hvítár er sendinn jarðvegur sem þornar mjög skart en það er gott að rækta í honum þegar við náum að koma vatni á þetta." Hann segir sveitunga sína grípa til ýmissa ráða til að bjarga uppskeru sinni og fleiri hafi keypt búnað sem þennan. „Þeim er alltaf að fjölga svo eru menn að grípa í haugsugurnar og nota alls konar tanka og ílát til að keyra á kálið." Ekki þarf að aka vélinni heldur fer hún sjálf eftir slöngunni. Hins vegar þarf að vaka vel yfir henni þótt bændur reyni að hvílast inn á milli. „Svo á nóttunni þá leggur maður nálægt henni svo hrekkur maður við þegar maður fær gusuna á sig," segir Friðrik að lokum.
Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira