Mikkel Hansen og Heidi Löke kosin besta handboltafólk í heimi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. mars 2012 17:30 Mikkel Hansen. Mynd/Nordic Photos/Getty
Danska stórskyttan Mikkel Hansen og norski línumaðurinn Heidi Löke voru kosin besta handboltafólk ársins 2011 af Alþjóðahandboltasambandinu en að kosningunni komu fjölmiðlamenn, handboltasérfræðingar IHF og áhugafólk sem gat kostið á heimasíðu sambandsins. Rúmeninn Cristina Neagu og Tékkinn Filip Jicha fengu þessu verðlaun fyrir árið 2010. Þessi verðlaun hafa verið gefin frá árinu 1988. Heidi Löke fékk 28 prósent atkvæða í kjörinu en í 2. sæti var Frakkinn Allison Pineau með 22 prósent og norski markvörðurinn Katrine Lunde Haraldsen varð síðan þriðja með 20 prósent atkvæða. Mikkel Hansen fékk 31 prósent atkvæð í kjörinu, Filip Jicha varð í 2. sæti með 21 prósent atkvæða og Frakkarnir Nikola Karabatic og Luc Abalo fengu svo báðir 19 prósent atkvæða í boði. Heidi Löke varð heimsmeistari með norska landsliðinu og vann alla titla með norska liðinu Larvik HK þar á meðal Meistaradeildina. Hún varð markadrottning í bæði norsku deildinni og Meistaradeildinni á síðasta tímabili en skipti síðan yfir í ungverska liðið Audi ETO Györ í haust. Mikkel Hansen vann tvöfalt með AG kaupmannahöfn á árinu 2011 auk þess að verða í 2. sæti með danska landsliðinu á HM þar sem hann varð markakóngur keppninnar.
Handbolti Mest lesið Joshua kjálkabraut Paul Sport Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Enski boltinn Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Enski boltinn „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ Handbolti Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti Fleiri fréttir Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Viktor Gísli stóð vaktina er fullkomið gengi Börsunga hélt áfram Snorri kynnir EM-fara í vikunni Mega handvelja lið utan Evrópu inn í Meistaradeildina EM ekki í hættu Á hækjum á milli leikja og þoldi sífellt verri sársauka Sjá meira