Innlent

Alvarleg líkamsárás í Hafnarfirði

Nokkrir menn réðust saman á einn karlmann fyrir utan veitingastað í Hafnarfirði laust fyrir klukkan tvö í nótt, og létu högg og spörk dynja á honum. Hann hlaut meðal annars áverka á höfði og hálsi.

Árásarmennirnir voru á bak og burt þegar lögregla kom á vettvang og er þeirra nú leitað, en þolandinn var fluttur á slysadeild Landsspítalans.

Fréttastofunni er ekki nánar kunnugt um málsatvik, þar sem ekki næst samband við lögregluna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×