Innlent

Kona og börn læstust inni á klósetti í 45 mínútur

Frá sundlauginni í Reykjanesbæ. Atvikið átti sér stað inn í kvennaklefanum.
Frá sundlauginni í Reykjanesbæ. Atvikið átti sér stað inn í kvennaklefanum. mynd/vilhelm
Kona, ásamt þremur börnum sínum, læstist inni á klósetti í Sundmiðstöðinni í Reykjanesbæ í fjörutíu og fimm mínútur í vikunni. Óttast var að súrefnislaust gæti orðið á salerninu og því var ákveðið að kalla á lögreglu. Þegar hún kom á staðinn hafði starfsmaður í sundlauginni náð að brjóta upp hurðina og hleypa konunni og börnunum út.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×