Ögmundur: Það getur ýmislegt gerst í lokaumferðinni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. september 2012 07:00 Ögmundur hefur staðið sig vel í markinu hjá Fram.fréttablaðið/stefán
Ögmundur Kristinsson, markvörður Fram, átti stórleik þegar Safamýrarpiltar unnu afar mikilvægan sigur á ÍA, 1-0, í næstsíðustu umferð Pepsi-deildar karla um helgina. Með sigrinum komust Framarar þremur stigum frá fallsæti. „Það var afar mikilvægt að fá þrjú stig úr þessum leik og í raun ekkert annað sem kom til greina," sagði Ögmundur við Fréttablaðið í gær. „Við mættum mjög ákveðnir til leiks en svo tók þetta hávaðarok á móti okkur og maður var því ekki alveg viss um hvað við værum að fara í." Skagamenn komust nálægt því að jafna á lokamínútunum en Ögmundur var vel á verði og sá til þess að Framarar misstu leikinn ekki í jafntefli, eins og þeir gerðu gegn Stjörnunni aðeins nokkrum dögum áður. „Það var ekki í fyrsta sinn sem það gerðist í sumar og því kannski skiljanlegt að liðið bakkaði ef til vill fullmikið til baka síðustu tíu mínúturnar," sagði Ögmundur. „En það er stundum sagt að 1-0 sigrar séu þeir sætustu og ég held að það hafi sannast í gær." Selfoss á enn möguleika á að bjarga sér frá falli og senda Fram í 1. deildina. Selfoss þarf þá að vinna ÍA og treysta á að ÍBV hafi betur gegn Fram í Laugardalnum. Fram er þó með betra markahlutfall og þarf sex marka sveiflu til að breyta því. „Við erum algjörlega meðvitaðir um að þetta er ekki komið hjá okkur. Við vorum ánægðir um helgina en við ætlum að vinna ÍBV. Þetta lítur vissulega vel út á pappírnum fyrir okkur en maður hefur séð ýmislegt gerast í lokaumferð deilda bæði hérlendis og ytra," bætti markvörðurinn við.Lið 21. umferðar Ögmundur Kristinsson, Fram Atli Sveinn Þórarinsson, Val Kristján Hauksson, Fram David Elebert, Fylki Rúnar Már Sigurjónsson, Val Atli Jóhannsson, Stjörnunni Emil Ásmundsson, Fylki Kristinn Jónsson, Breiðabliki Þórarinn Ingi Valdimarsson, ÍBV Ingimundur Níels Óskarsson, Fylki Garðar Jóhannsson, Stjörnunni
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Enski boltinn Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Körfubolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Fótbolti Fleiri fréttir ÍBV - Valur 2-1 | Ferskir Frakkar, eitraðar Eyjakonur og veiklulegur Valur Breiðablik - Víkingur | Heimakonur skoruðu þrjú á sjö mínútna kafla Skoða markaðinn til að þurfa ekki að gefa fleiri leiki „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Sjáðu Stjörnuna stimpla sig í titilslag og Hamlett koma Fram af botninum Bónorð strax eftir leik í Garðabæ „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Uppgjörið: Þróttur-Fram 0-1 | Unnu aftur og komust af botninum Uppgjörið: Stjarnan-Þór/KA 3-2 | Stjörnukonur aftur á sigurbraut Fimm HK-ingar á skotskónum í stórsigri KSÍ ætlar ekki að láta gervigreindina koma í stað starfsfólks Sjáðu dramatíkina í endurkomusigri Blika „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Fylkismenn keyrðu yfir Vestra í upphafi leiks Frábært að koma úr meiðslum og skora sitt fyrsta mark Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Uppgjörið: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn Þórdís fer frá Þrótti til Breiðabliks Völdu besta og efnilegasta leikmanninn ásamt úrvalsliði deildarinnar Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Dagskráin í dag: Umferðin klárast og allt gert upp í Stúkunni „Leikurinn sýnir að við erum að þróast í rétta átt“ „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Uppgjörið: FH - Valur 2-0 | Gils gerði gæfumuninn í langþráðum sigri FH-liðsins Magnaður Sveinn Margeir: „Við eigum fullt inni“ Uppgjörið: KA - ÍA 3-2 | Víti í blálokin og loksins vann KA leik „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Uppgjörið: KR - ÍBV 5-2 | Eyjamenn sáu ekki til sólar í rokinu vestur í bæ Sjá meira