Segir tekjublöðin gefa ranga mynd af auð Íslendinga Karen Kjartansdóttir skrifar 30. júlí 2012 20:00
Ríkustu Íslendingarnir eru miklu ríkari en tölur tekjublaðanna gefa upplýsingar um. Þetta segir prófessor við Háskóla Íslands. Ástæðan sé sú að ekki séu upplýsingar um fjármagnstekjur og margar eignir séu auk þess í skattaskjólum. Stefán Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands, telur að ástæða sé að minna fólk að þær upplýsingar sem finna má í tekjublöðum um þessar mundir veita aðeins vísbendingar um launatekjur fyrir skatta fara ekki nærri um það hverjar heildartekjur margra eru. Ríkasti hluti Íslendinga sé miklu tekjuhærri en þessar tölur gefi til kynna. Á bloggi sínu segir hann að það sem helst þurfi að taka tillit til í þessu samhengi sé að ekki séu upplýsingar um fjármagnstekjur, en í stuttu máli má segja að það séu tekjur utan launa. „Þær eru um talsverður hluti af tekjum fólks en ekki í öllum tekjuhópum," segir Stefán. „Það er fyrst og fremst í allra hæstu tekjuhópunum. Þegar þær eru undanskildar þá erum við að undanskilja mjög stóran hluta af tekjum hátekjuhópanna." Fjármagnstekjur voru allt að 85 prósent tekna allra tekjuhæstu hópanna, sem eru um eitt prósent landsmanna, á árunum 2005 til 2007. Það er að segja á tímabilinu sem annað hvort er kennt við góðæri eða bólumyndun. Hjá hátekjufólki, sem eru um 10 prósent fjölskyldna var hlutur fjármagnstekna hins vegar verið um ríflega helmingur af heildartekjum. Fyrir miðtekjufólk og lágtekjufólk nam hlutur fjármagnstekna um 5 prósent af innkomunni. Tekið skal fram að hlutur fjármagnstekna hefur lækkað verulega eftir hrun hjá tekjuhæsta hópnum. Útreikningar sem birtar voru í tímaritinu Vísbendingu frá því í nóvember í fyrra sýna það glöggt. En Stefán telur að þótt tillit væri tekið til fjármagnstekna hafi enn ekki fengist rétt mynd af tekjunum. „Vegna þess að fjármagnstekjur eru fyrst og fremst eignatekjur og eignir eins og skatturinn skráir þær eru sumar skráðar á nafnvirði en ekki markaðsvirði dagsins í dag. Þannig að þar geta verið faldar eignir og í öðru lagi voru margar eignir fluttar úr land í erlend skattaskjól á árunum fyrir hrun," segir Stefán. Hann vitnar til alþjóðlegrar skýrslu sem birt var 22. júlí af samtökum sem kenna sig við réttlæti í skattamálum, það er Tax Justice Network, og fjallar um flæði fjármagns í erlend skattaskjól. En í henni segir meðal annars að gera má ráð fyrir því að upphæð sem nemur um 30 prósent af árlegri framleiðslu í öllum heiminum sé í skattaskjóli. „Ef það voru 30 prósent sem runnu héðan úr landi af eignum og eignatekjum þá er þar verulegt vanmat þar á eignum fólks."
Mest lesið Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Innlent Barist á hafi úti Erlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent „Það er bara frekar slæmt ástand“ Innlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent Fleiri fréttir Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Sjá meira