Tek tvö ár með trompi Henry Birgir Gunnarsson skrifar 14. nóvember 2012 07:00 Ólafur Örn Bjarnason reynir hér að stöðva Steven Lennon í sumar. Þeir spila saman næsta sumar. Mynd/Valli
Framarar fengu flottan liðsstyrk í gær þegar hinn 37 ára gamli varnarmaður, Ólafur Örn Bjarnason, skrifaði undir samning við félagið. Hann kemur til liðsins frá Grindavík. „Ég vildi gera þetta á fullu í tvö ár eða sleppa þessu. Þegar maður á eitt ár eftir af samningi og veit ekki hvað tekur við þá verða síðustu mánuðir í lausu lofti. Ég er alls ekki búinn að fá leið á fótbolta og geri seint. Ég var því klár í að taka tvö ár með trompi," sagði varnarmaðurinn síungi. „Þetta gerðist hratt. Ég hitti Þorvald þjálfara á föstudagskvöldið og eftir það yngdist ég um fimm ár og var klár í allt. Hann var ekkert að velta fyrir sér hvað ég væri gamall heldur vildi hann semja við mig." Ólafur segir að sér lítist afar vel á Fram-liðið sem hefur ekki staðið undir væntingum síðustu ár. „Það hefur vantað einhvern herslumun hjá þeim. Það býr mikið í þessu liði og fullt af flottum fótboltamönnum þarna. Það þarf ekki mikið til að liðið fari að ógna þeim bestu tel ég." Ólafur er þriðji leikmaðurinn sem Fram fær til sín. Viktor Bjarki Arnarsson og Haukur Baldvinsson voru áður búnir að semja við Safamýrarliðið. „Ég var ekki í alvöru viðræðum við nein önnur félög. Bara smá spjall. Um leið og ég var búinn að tala við Þorvald var öllu öðru ýtt til hliðar. Ég tel okkur eiga að geta teflt fram flottu liði næsta sumar. Það er flott að fá Viktor inn sem kann þetta allt."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira