Innlent

Framhaldsskólakennarar kolfelldu nýjan kjarasamning

Framhaldsskólakennarar kolfelldu nýgerðan samning við ríkið í rafrænni kosningu þar sem 1639 kennarar voru á kjörskrá og 66,5 prósent þeirra greiddu atkvæði.

74 prósent þeirra sem tóku afstöðu, voru andvíg samningnum, liðlega 22 prósent fylgjandi og auðir seðlar voru tæp fjögur prósent.

Í skeyti frá félagi framhaldsskólakennara segir að líklega hafi framhaldsskólakennarar aldrei áður fellt kjarasamning, sem forysta þeirra hefur borið undir atkvæði, með jafn afgerandi hætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×