Mæta auknum umsvifum fyrir austan 29. maí 2012 05:00 HB Grandi bíður þess að síld og makríll gefi sig og byggir upp á meðan.mynd/js
HB Grandi vinnur að því að stækka og betrumbæta frystihús sitt fyrir uppsjávarfisk á Vopnafirði. Unnið er að því að auka afkasta- og frystigetu auk þess sem starfsmannaaðstaða er stækkuð. Vinnsla liggur niðri bæði í uppsjávarfrystihúsinu og fiskmjölsverksmiðjunni og hefst starfsemi að nýju væntanlega ekki fyrr en í lok júní, eins og kemur fram á heimasíðu fyrirtækisins. Magnús Róbertsson, vinnslustjóri á Vopnafirði, segir að tveimur elstu flökunarvélunum í vinnslunni verði skipt út fyrir tvær nýjar og alsjálfvirkar vélar. Einnig sé stefnt að því að tvöfalda frystigetuna í blástursfrystinum og auka sjálfvirkni vinnslulínu. Þá er verið að stækka starfsmannaaðstöðuna til mikilla muna en þröngt var orðið um starfsfólkið vegna þeirra auknu umsvifa sem orðið hafa á starfseminni. ?Við höfum notað tímann að undanförnu og verið með hin ýmsu námskeið fyrir allt okkar starfsfólk á Vopnafirði. Haldin voru grunn- og framhaldsnámskeið fyrir fiskvinnslufólk en síðarnefnda námskeiðið felur í sér að þeir sem því ljúka hækka í launum. Þá hafa verið haldin fleiri vinnutengd námskeið; skyndihjálpar-, gæða- og hreinlætisnámskeið, sem og valfrjáls afþreyingarnámskeið,? segir Magnús. - shá
Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira