Tryggvi samdi við Fylki: Ég kem vonandi með eitthvað Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. nóvember 2012 20:50 Tryggvi Guðmundsson. Mynd/Stefán
Tryggvi Guðmundsson skrifaði í kvöld undir eins árs samning við Fylki og mun spila með liðinu í Pepsi-deild karla næsta sumar. Tryggvi hefur spilað með ÍBV undanfarin þrjú sumur. „Það er alltaf góð og notaleg stund þegar þessu er loksins lokið. Ég er mjög sáttur við þessa ákvörðun. Ég fann fyrir miklum áhuga frá þeim að fá mig og mér lýst mjög vel á Fylki og hvað planið er hjá þeim," sagði Tryggvi Guðmundsson þegar Vísir heyrði í honum í kvöld. Ingimundur Níels Óskarsson hefur ákveðið að fara frá Fylki í FH en er það í verkhring Tryggva að fylla í hans skarð? „Bæði og. Hann er meiri kantmaður og við erum kannski ekki líkar týpur inn á vellinum. Það er mikill missir í honum en ég kem vonandi með eitthvað. Sverrir Garðarsson er kominn inn líka með sína reynslu og gæði þegar hann er heill. Það reynir á mann og það er það sem maður vill," sagði Tryggvi. „Mér fannst Ási (Ásmundur Arnarsson þjálfari Fylkis) spila vel úr spilunum sem hann hafði í sumar og þeir voru ekki langt frá því að komast í Evrópusæti eins og kannski öll önnur lið því þetta var skrýtið sumar. Það er klárt að stefnan er sett hærra næsta sumar," sagði Tryggvi. Tryggvi á nú einn markametið en hann hefur skorað 129 mörk í 232 leikjum í efstu deild. „Verður maður ekki að gera það og fara allavega upp fyrir 130 mörkin. Ég þarf nú bara eitt í það og það væri fín byrjun," sagði Tryggvi en ætla Fylkismenn sér Evrópusæti næsta sumar? „Menn voru nálægt því að komast í Evrópukeppnina í sumar og það munaði ekki nema einum eða tveimur sigurleikjum. Ég tel að menn í liðinu hafi fundið hvað þeir voru nálægt þessu. Ég er búinn að spila nokkra Evrópuleikina og þekki aðeins til. Ég næ vonandi aðeins að smita út í strákana og reyni að segja þeim hversu djöfull skemmtilegt það er að spila í Evrópukeppninni. Það er klárlega markmiðið hjá liðinu," sagði Tryggvi.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Sjá meira