Innlent

Sáttatillaga lögð fram í veiðigjaldamálinu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sáttartillaga var lögð fram í morgun á fundi atvinnuveganefndar um frumvarp um veiðileyfagjald. Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður VG, og fulltrúi í atvinnuveganefnd segir að um sé að ræða tillögu frá meirihluta atvinnuveganefndar sem meirihlutinn telji að geti náðst ágætis samstaða um.

„Hún felst í fyrsta lagi í því að við skjótum ágreiningi um forsendur veiðigjalda, það er að segja hvernig stofninn er fundinn, til veiðigjaldanefndar sem frumvarpið gerir ráð fyrir að verði skipuð um leið og frumvarpið verður samþykkt. Það verði unnið samkvæmt tillögum þeirra og miðað við fiskveiðiárið 2013-2014," segir Björn Valur í samtali við Vísi.

Björn Valur segir að á næsta fiskveiðiári verði veiðigjaldið innheimt til bráðabirgða sem krónugjald á kíló. Þannig náist veiðigjald sem samsvarar því að vera 50% álagning í stað 70% eins og áður hafði verið ákveðið.

Fleiri breytingatillögur hafa verið gerðar sem miða að því að koma til móts við athugasemdir sem gerðar hafa verið við frumvarpið.

Björn Valur Gíslason segir að atvinnuveganefnd muni hittast aftur á morgun til að ræða frumvarp um fiskveiðistjórnunarkerfið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×