Innlent

Grunaður um ölvunarakstur hafnaði utan vegar

Ökumaður, sem er grunaður um ölvunarakstur, missti stjórn á bíl sínum á Hafnarfjarðarvegi við Arnarnesbrú um miðnætti og hafnaði bíllinn utan vegar.

Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild til aðhlynningar, en reynidst ekki mikið meiddur. Bíllinn er hinsvegar óökufær og var fjarlægður með kranabíl.

Þrír aðrir ökumenn voru teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinu, ýmist ölvaðir eða dópaðir, og tveir til viðbótar reyndust réttindalausir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×