Innlent

Bandaríski herinn sýnir kúnstir í Íslandi í dag

Bandaríski flugherinn hefur sinnt loftrýmisgæslu NATO á Íslandi og verður hér til 7. júní. Í Íslandi í dag í kvöld verður farið á æfingu með bandaríska flughernum. Þátturinn fékk að fara með hernum í loftið og fylgjast með því þegar F15 orrustuþota er fyllt af eldsneyti í 22 þúsund feta hæð.

Í Íslandi í dag í kvöld má sjá sýnishorn af þessari mögnuðu æfingu en þátturinn er í opinni dagskrá á Stöð 2 og hér á Vísi klukkan 18.55.

Uppfært: Innslagið er nú komið í heild sinni á Vísi. Hægt er að horfa á það hér fyrir ofan eða á sjónvarpssíðu Vísis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×