Innlent

Magnús Orri segir rústabjörgun hrunsins vera lokið

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Magnús Orri talaði máli Samfylkingarinnar við eldhúsdagsumræður í dag.
Magnús Orri talaði máli Samfylkingarinnar við eldhúsdagsumræður í dag.
Stjórnarmeirihlutinn hefur reynt að verja hina tekjulægri við afleiðingum hrunsins, sagði Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingarinnar, við eldhúsdagsumræður á Alþingi í dag.

Hann sagði að undanfarið hefði atvinnuleysi farið minnkandi, kaupmáttur aukist og jafnvægi yrði komið í rekstur ríkissjóðs á næsta ári. „Nú höfum við lokið við rústabjörgun hrunsins," sagði hann.

Magnús sagði að bætur lífeyrissjóðsþega hefðu verið hækkaðar um 60% frá hruni og bætur almannatrygginga hafa hækkað um 50%. „Með þessu höfum við reynt að verja hina tekjulægri við afleiðingum hrunsins," sagði Magnús.

Magnús sagði að verkefnin framundan væri að leyfa þjóðinni að kjósa um stjórnarskrá samhliða næstu alþingiskosningum og að ganga í Evrópusambandið til að losna við verðtryggingu og krónuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×