Þurfti allt að fjórðung blóðeininga Blóðbankans 29. maí 2012 14:20 „
Þetta er mjög mikið," svarar Þorbjörn Jónsson læknir hjá Blóðbankanum spurður út í blóðmissi Skúla Eggerts Sigurz, framkvæmdastjóri Lagastoða. Guðgeir Guðmundsson hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps þegar hann stakk Skúla fimm sinnum, fjórar hnífstungur voru lífshættulegar. Í árásinni missti Skúli 50 lítra af blóði samkvæmt ákæruskjali. Til þess að setja blóðmagnið í samhengi þá má benda á að Skúli missti sex til tífalt blóðrúmmál líkamans. Það fer þó eftir stærð manneskjunnar en í fullorðnum einstaklingum eru um fimm lítrar af blóði. Þá má benda á að í Blóðbankanum eru sex til sjö hundruð blóðeiningar. Að sögn Þorbjörns eru það á bilinu 200 til 300 lítrar af blóði sem Blóðbankinn hefur yfir að ráð hverju sinni. Skúli þurfti því allt að fjórðung blóðbirgða bankans vegna árásarinnar. „Í flestum tilvikum fær maður sömu blóðflokkana gefna, en ef þú missir svona mikið þá ertu búinn að missa obbann af eigin blóði," segir Þorbjörn. Hann bendir á að blóðgjafir í svo miklu magni séu blandaðar blóðkornum, blóðvökva og svo blóðflögum. Þá má geta þess að eftir árásina lýsti yfirlæknir Blóðbankans, Sveinn Guðmundsson, yfir neyðarástandi í blóðbankanum, bæði vegna árásarinnar auk þess sem mörg slys höfðu komið upp á skömmum tíma. Þá sagði hann í viðtali við Vísi að dæmi væru um að læknar hafa þurft að nota 70 lítra af blóði í einni aðgerð. Guðgeir tók sér frest til þess að taka afstöðu til sakarefnanna í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hann er einnig ákærður fyrir hættulega líkamsárás þegar hann stakk Guðna Bergs lögfræðing tvívegis í lærið þegar Guðni kom Skúla til bjargar. Skúli er enn að ná sér eftir árásina, enda líkamlegur skaði hans margvíslegur. Þannig missti hann ekki aðeins 50 lítra af blóði, heldur þurfti að fjarlægja annað nýrað og gallblöðru auk þess sem hann hlaut aðra alvarlegra áverka.
Tengdar fréttir Guðgeir sýndi engin svipbrigði - Skúli missti 50 lítra af blóði Guðgeir Guðmundsson sýndi engin svipbrigði þegar fulltrúi ríkissaksóknara las yfir ákæruatriðin gegn honum í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir stundu. Guðgeir er ákærður fyrir tilraun til manndráps er hann stakk Skúla Eggert Sigurz fimm sinnum með hníf þegar hann réðist á hann á lögfræðistofunni Lagastoðum í mars síðastliðnum, þar af voru fjórar stungur lífshættulegar. 29. maí 2012 13:14 Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent „Ríkið á stóra sök á þessu“ Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Fleiri fréttir Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði Sjá meira
Guðgeir sýndi engin svipbrigði - Skúli missti 50 lítra af blóði Guðgeir Guðmundsson sýndi engin svipbrigði þegar fulltrúi ríkissaksóknara las yfir ákæruatriðin gegn honum í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir stundu. Guðgeir er ákærður fyrir tilraun til manndráps er hann stakk Skúla Eggert Sigurz fimm sinnum með hníf þegar hann réðist á hann á lögfræðistofunni Lagastoðum í mars síðastliðnum, þar af voru fjórar stungur lífshættulegar. 29. maí 2012 13:14