Virkjanir langstærstu tækifæri Skaftárhrepps 29. maí 2012 19:15
Ein virkjun gæti aukið tekjur Skaftárhrepps af fasteignasköttum um 40 prósent. Sveitarstjórinn segir fyrirhugaðar virkjanir langstærstu tækifærin sem sveitarfélagið hafi til atvinnusköpunar. Tvær stórar virkjanir í Skaftártungu eru nú á teikniborðinu. Landsvirkjun vill virkja Hólmsá ofan Hrífuness og Suðurorka vill virkja Skaftá með Búlandsvirkjun. Báðar virkjanir eru umdeildar, í rammaáætlun ríkisstjórnar eru þær settar í biðflokk. Skaftárhreppur segir í umsögn að byggðin þar eigi mjög undir högg að sækja. Fækkun íbúa og hækkandi meðalaldur séu augljós merki þess að hér sé um hnignandi samfélag að ræða. „Fyrir sveitarsjóð eru þetta stærstu tækifærin sem eru í kortunum í dag, langstærstu tækifærin," segir Eygló Kristjánsdóttir sveitarstjóri í viðtali í fréttum Stöðvar 2. Atvinnulíf er einhæft, enginn sjávarútvegur, og mikil uppbygging ferðaþjónustu hefur ekki vegið gegn fólksfækkun. Horft er á hverju álíka virkjanir skila annarsstaðar. Eygló nefnir sem dæmi að í Blönduvirkjun séu 15 starfsmenn. Fyrir sveitarfélag eins og Skaftárhrepp, með 446 íbúa, muni „rosalega" að fá 10 starfsmenn. Hér standa menn hugsanlega frammi fyrir ákveðinni þversögn; að taka hagsmuni orkunýtingar fram yfir hagsmuni sauðfjárræktar til að sveitahreppurinn fái þrifist. Virkjun gæti kúvent erfiðri fjárhagsstöðu. Eygló segir að fasteignagjöld af öllum eignum í Skaftárhreppi séu nú rétt um 50 milljónir króna. „Ein virkjun gæti gefið þetta um 20 milljónir." Andstæðingar virkjana í hreppnum hafa bent á að þær skerði beitiland og ógni sauðfjárbúskap. „Sauðfjárbúskapur er því miður ekki að gefa tekjur, - hvergi," segir sveitarstjórinn. Eygló segir að þótt sveitarfélagið hafi sett virkjanir inn á aðalskipulag séu það þó bændurnir, eigendur landsins, sem ráði á endanum. „Ef þeir vilja ekki þessar virkjanir, þá náttúrlega semja þeir ekki við fyrirtækin, og þar með er þetta sjálfhætt."
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Innlent Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sjá meira