Bærinn eins og ein stór fjölskylda eftir bruna Boði Logason skrifar 23. júlí 2012 20:19 Frá eldsvoðanum í gærkvöldi. Myndirnar tók Herborg Hulda Símonardóttir „
Þau bera sig bara vel en fengu náttúrulega sjokk þegar þetta gerðist. Núna eru þau búin að átta sig á þessu. Auðvitað eru þau skelkuð og önnur fjölskyldan búin að missa allt," segir Pálína Hermannsdóttir hjá Rauða Krossinum í Vestur Barðastrandarsýslu, en samtökin hafa aðstoðað fjölskyldu á Tálknafirði í kjölfar eldsvoða sem varð í fjölbýlishúsi í bænum í gærkvöldi. Að sögn Pálínu felst aðstoðin meðal annars í því að útvega fólkinu föt, hreinlætisvörur og aðrar nauðsynjar auk þess að veita þeim sálrænan stuðning. „Það er mikil samkennd í gangi. Fólk er duglegt að koma til okkar áhöldum, fatnaði og sængurfötum, svo eitthvað sé nefnt. Það eru allir boðnir og búnir og tilbúnir að rétta fram hjálparhönd. Þegar svona áfall verður þá verður bærinn bara eins og ein stór fjölskylda. Strax í gærkvöldi kom ótrúlegasta fólk til okkar og vildu hjálpa til. Við erum einnig búin að bjóða fjölskyldunum að koma í fatasöfnunina okkar á morgun," segir hún. Í húsinu eru fjórar íbúðir og var fólk í þremur þeirra þegar eldurinn kom upp. Íbúð og innbú fjögurra manna fjölskyldu fór verst í brunanum og missti hún nær allt sitt. Sú fjölskylda og önnur fjögurra manna fjölskylda hafa fengið húsaskjól annarsvegar hjá vinafólki og hins vegar hjá atvinnuveitenda annarrar fjölskyldunnar. Ungur maður sem var í þriðju íbúðinni fékk húsaskjól á heimili foreldra sinna í bænum. Allar íbúðirnar voru rýmdar vegna brunans í gærkvöldi og er unnið að því að reykræsta húsið. Sjálfboðaliðar Rauða krossins á Tálknafirði brugðust við strax og ljóst var um brunann í gærkvöldi og hófu aðstoð við það fólk sem býr í húsinu. Sjálfboðaliðar Rauða krossins munu veita fólkinu áframhaldandi aðstoð í vikunni, hitta þolendur og veita þeim ráðgjöf og stuðning.
Mest lesið Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent Fleiri fréttir „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Sjá meira