Fréttamaður TV2: Má réttlæta dómgæsluna Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Köln skrifar 27. maí 2012 12:07
Ulrik Jönsson, íþróttafréttamaður hjá TV2 í Danmörku, segir að viðbrögð þar í landi eftir leik AG og Atletico Madrid í Meistaradeild Evrópu í gær hafi verið blendin. AG tapaði fyrir Atletico Madrid í undanúrslitum keppninnar með tveggja marka. Dómarar leiksins höfðu mikil áhrif á lokamínúturnar og fannst mörgum að AG hafi verið beitt órétti. „Viðbrögðin í Danmörku hafa verið mjög blendin. Leikmennirnir og eigandi félagsins voru mjög reiðir út í dómara leiksins. En margir sérfræðingar sem hafa skoðað atvikin í sjónvarpi segja að réttlæta megi ákvarðanir dómaranna," sagði Jönsson en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan. Undir lokin komst AG í hraðaupphlaup og Guðjón Valur skoraði mark sem var dæmt af vegna sóps. Jönsson segist ekki hafa séð atvikið nógu vel sjálfur. „Ég ræddi við Jesper Jensen, sem spilaði áður með danska landsliðinu, og hann sagði mér að þetta væri réttur dómur, þó svo að vissulega væri ekki venjulega flautað á svona lagað." „Það eru þessi litlu atriði sem féllu ekki með AG í leiknum og þetta er eitt dæmi um það." Jönsson segir að viðbrögð leikmanna AG séu skiljanleg. „Það er innprentað í þá að vinna alla leiki, sama hvort það sé í Final Four eða ekki. Vonbrigðin voru því mikil fyrir þá." Hann á von á jöfnum og spennandi leik á milli AG og Füchse Berlin í bronsleiknum í dag. „Ég tel að þessi leikur skipti Füchse Berlin meira máli en AG. Nú þegar það liggur fyrir að AG verði ekki meistari þá verður erfitt fyrir leikmenn liðsins að gíra sig upp í leikinn. Füchse Berlin hefur hins vegar enn að miklu að keppa." „Ég tel að AG sé með sterkara lið en að hugarfar Füchse Berlin verði betra í leiknum. Ég ræddi við Joachim Boldsen og hann sagði mér að það væri algjörlega tilgangslaust að spila þessa bronsleiki. Ég á því von á spennandi leik."
Handbolti Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Fótbolti Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira